Á aðalfundi í vor var tilkynnt um val á forstöðumanni, Gunnhildi Stellu Pálmarsdóttur. Við boðum nù til auka aðalfundar sunnudaginn 6. september kl: 13 þar sem eini dagskrárliðurinn er að kjósa um forstöðumann.
Eftir formlega fundinn verður sjálfboðaliðafundur fyrir fólk í þjónustu og þá sem vilja koma í þjónustu í kirkjunni.
Boðið verður upp á eitthvað matarkyns milli samkomu og fundar.

