Trú okkar
Trú okkar er: Jesús er Drottinn (1. Korintubréf 12:3). Kenningar Hvítasunnukirkjunnar eru:
1 Við trúum að Biblían sé innblásið og áreiðanlegt orð Guðs. (2. Tím. 3:16).
2 Við trúum á einn eilífan Guð, þríeinan, Föður, Son og Heilagan anda. (Jes. 40:28; Matt. 3:16-17; Jóh. 1:18; 10:30).
3 Við trúum á Jesú Krist, Guðs einkason, getinn af Heilögum anda, fæddan af Maríu mey. Hann sem var Guð svipti sig öllu og kom fram sem maður, mannlíf hans var syndlaust og fullkomið. (Lúk. 1:35; Fil. 2:7; Heb. 4:15).
4 Við trúum því að fyrirgefning synda og friður við Guð fáist aðeins vegna fórnardauða Jesú Krists. Sú fórn var fullkomin og nægir til réttlætingar fyrir alla þá sem iðrast synda sinna. Réttlæting fæst af náð, fyrir trú, án verðskuldunar og er gjöf Guðs til allra sem játast Jesú Kristi. (Jóh. 3:16; Efes. 2:8; Kól. 2:13-15; Róm. 10:9-10).
5 Við trúum því að Jesús hafi risið líkamlega upp frá dauðum, stigið til himna og sitji til hægri handar Guði föður. (Jóh. 20:20; Post. 1: 1-3, 9; 1 Kor. 15:3-4).
6 Við væntum endurkomu Jesú Krists, þegar hann hrífur kirkju sína til fundar við sig. Eftir fyrirheiti hans væntum við nýs himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti býr. (Post. 1:9-11; Opb. 21:1; 2. Pét. 3:13).
7 Þeir sem velja að fylgja Jesú Kristi fá Heilagan anda að gjöf. Hann umbreytir hugsun og hegðun eins og Biblían kennir. Hinn kristni verður með tímanum líkari Jesú í orði, verki og viðhorfum. (Galatabréfið 5:22-23; Róm.12:2; 2. Kor.5:17; Heb. 12:14; 2.Pét. 3:11).
8 Við trúum á gildi skírnar Heilags anda og náðargjafanna eins og þeim er lýst í Nýja Testamentinu. (Post. 1:8; 1. Kor. 12 og 14; Efesusbréfið 4:11-12).
9 Við trúum að kristin kirkja sé stofnuð af Jesú til að vera farvegur fyrir verk Guðs á jörðinni, að skírn í vatni sé aðeins fyrir þá sem hafa tekið á móti Jesú Kristi sem frelsara sínum. Við skírum með niðurdýfingu, til Drottins Jesú Krists í nafni þrenningarinnar. Heilög kvöldmáltíð hefur einungis gildi fyrir þá sem hafa tekið við náð Guðs og eru lærisveinar Jesú Krists. (Kól. 1:18, Matt. 28:19).
10 Við trúum á eilíft líf hinna endurleystu á himni og eilífa glötun þeirra er hafna hjálpræðinu. (Matt. 25:46; Jóh.3:16; 1. Þess. 4:17).