Alfa námskeið

Alfa námskeið

Hvítasunnukirkjan á Selfossi heldur Alfanámskeið sem byrjar með kynningarkvöldi kl. 18:00 þann 15. September nk. 

Alfa er 10 vikna námskeið sem fjallar um kristna trú á aðgengilegan og skemmtilegan hátt þar sem tækifæri gefst á að skoða stóru spurningar lífsins út frá kristnu sjónarhorni. 

Hist er á þriðjudögum einu sinni í viku í tvær og hálfa klukkustundir í senn og hefst námskeiðið þann 22. September nk. Kl. 18:00. 

Þúsundir Íslendinga hafa sótt Alfanámskeið, verið mjög ánægðir með námskeiðið og hafa mælt með því við aðra. 

Námskeiðsgjaldið er kr. 10.000,- og er innifalin heit máltíð í upphafi hverrar stundar. Um mitt námskeið verður farið í helgarferð út úr bænum.

HVERNIG VIRKAR ALFA?

Hver stund hefst með mat, samfélagi og spjalli og síðan er kennsla um viðfangsefni kvöldsins og umræður. Kennslurnar eru til þess gerðar að vekja upp margar spurningar. Þær fjalla um stóru málefnin tengd trúnni og útskýra grunnatriði kristinnar trúar. 

Skráning hér: https://forms.gle/6bR2pAR1bJ8zNGW96

Allir hjartanlega velkomnir                                                                                                                                                                       

Auka aðalfundur
Sunnudaginn 6. september

Á aðalfundi í vor var tilkynnt um val á forstöðumanni, Gunnhildi Stellu Pálmarsdóttur. Við boðum nù til auka aðalfundar sunnudaginn 6. september kl: 13 þar sem eini dagskrárliðurinn er að kjósa um forstöðumann.

Eftir formlega fundinn verður sjálfboðaliðafundur fyrir fólk í þjónustu og þá sem vilja koma í þjónustu í kirkjunni. 
Boðið verður upp á eitthvað matarkyns milli samkomu og fundar.