Nýr forstöðumaður í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi

Published September 8, 2026
Nýr forstöðumaður í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi


Á auka aðalfundi Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi, sunnudaginn 6. september 2026, var Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir, jafnan kölluð Gunna Stella, formlega kosin forstöðumaður kirkjunnar.

Í starfi sínu mun Gunna Stella hafa leiðandi hlutverk í uppbyggingu safnaðarins, í nánu samstarfi við stjórn kirkjunnar. Áhersla verður lögð á að nyjir í trúni  fái góðan stuðning, fræðslu og tækifæri til að tengjast samfélagi kirkjunnar. Einnig mun hún leggja áherslu á að styðja og hvetja leiðtoga innan kirkjunnar og skapa góð tækifæri fyrir sjálfboðaliða til að taka virkan þátt í starfinu. Gunna Stella verður í 20% starfshlutfalli.

Gunna Stella er gift Aroni Hinrikssyni og saman eiga þau 4 börn en eru auk þess fósturforeldrar. Gunna Stella er menntaður kennari og fjölskyldufræðingur og starfar jafnframt í geðheilsuteymi HSU. Hún hefur um árabil verið virk í starfi Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi sem sjálfboðaliði, meðal annars í barna- og unglingastarfi, í forystu og sem stjórnarmaður.