Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Alfa námskeið


Alfa er 10 vikna námskeið, einu sinni í viku, þar sem á einfaldan og þægilegan hátt er fjallað um grundvallaratriði kristinnar trúar. Tekist er á við mikilvægustu spurningar lífsins í afslöppuðu umhverfi án þess að nokkrar kröfur séu lagðar á námskeiðsgesti.

Námskeiðið er byggt upp á þennan hátt:

Kl. 19:00 - 19:45  kvöldverður og samfélag.

Kl. 19:45 - 21:00 kennsla og kaffihlé.

Kl. 21:00 - 22:00 skipt upp í umræðuhópa og rætt um viðfangsefni kvöldsins.


Námskeiðið kostar 7000 krónur.

Um mitt námskeið er farið út úr bænum á "Alfa-helgi" og það er ferð sem enginn ætti að missa af. Ef marka má þær kannanir sem gerðar hafa verið að loknum námskeiðum hefur mjög mörgum fundist þessar helgar vera "toppurinn" á alfa námskeiðinu. Helgin með  gistingu, kennslu og mat kostar 7000 krónur.

Heildarverð fyrir námskeiðið er því  14.000 krónur.

Nánari upplýsingar í síma 694-9498



Næsta námskeið verður auglýst síðar
Flettingar í dag: 68
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014813
Samtals gestir: 133626
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:38:41

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is