Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Hjálparsjóðurinn okkar

Frá og með 1. janúar 2012 hafa verið gefnar út nýjar úthlutunarreglur hjálparsjóðs Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi. Til þess að aðstoðin nýtist best þeim sem mest þurfa á henni að halda  eru breytingarnar nauðsynlegar. Felast þær meðal annars í því að nú þarf fólk sýna fram á fjárhagslega stöðu sína eins og sjá má í reglum hér að neðan.  


1.  Úthlutun fer fram milli klukkan 16:30 og 17:30 á þriðjudögum

     í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi nema fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.

     Gengið er inn sunnan við húsið og upp á loft til vinstri.


2.  Hver einstaklingur í brýnni þörf getur mest fengið úthlutað þrisvar

           sinnum á hverju 12 mánaða tímabili. Ekki er heimilt að víkja frá

           þessari reglu.


3.   Aðeins er hægt að úthluta einu sinni á hverja fjölskyldu         

            að hámarki þrisvar á 12 mánaða tímabili.


      4.   Skilyrði fyrir úthutun:

  • Sýna þarf launaseðla síðustu tveggja mánaða þegar sótt er um úthlutun.
  • Til þess að geta sótt um úthlutun þarf einstaklingur að sækja stutt og hagnýtt fjármálanámskeið sem Hvítasunnukirkjan býður upp á, fólki að kostnaðarlausu. Námskeiðin verða haldin með jöfnu millibili og hægt er að skrá sig á þau með því að senda póst á netfangið    skrifstofa@selfossgospel.is

  • Sá sér um úthlutun hefur heimild til að hafna beiðni um aðstoð.


     5.  Ákvörðun um upphæð miðast við fjölda einstaklinga í heimili.

      

       a.    1-3 einstaklingar í fjölskyldu = 5.000 kr. bónuskort

       b.    4 og fleiri = 10.000 kr. bónuskort



6.    Við tökum niður nafn, kennitölu og heimilisfan einstaklings og

             skráum í tölvu hjá okkur. Við höldum þannig bókhald yfir það

             hversu oft einstaklingur hefur komið yfir árið.



7.   Viðtakandi þarf að skrifa undir fyrir móttöku korts. Okkur er það

      mikil gleði að geta hjálpað þeim sem eru í brýnni þörf en biðjum

      fólk um að virða að eingöngu er um neyðaraðstoð að ræða.

Flettingar í dag: 61
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014806
Samtals gestir: 133622
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 03:55:44

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is