|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Velkomin/ná Selfossgospel.is Selfossgospel er heimasíða Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi. Markmið okkar er að hafa síðuna lifandi og þannig að hún endurspegli sem best það sem er í gangi í kirkjunni hverju sinni. Á síðunni finnur þú fréttir, umfjallanir, upptökur, myndir, pistla og margt fleira athyglisvert Kirkjan er fyrir þig. Staður gleði, uppörvunar, vináttu, sannleika og frelsis. Staður sem maður kemur á til þess að endurnærast og byggja sig upp. Lífið er fullt af áskorunum sem okkur gengur misjafnlega að takast á við. Sumir óttast framtíðina og þær áskoranir sem framundan eru. Sumir lifa nútíðinni í skugga fortíðar sem var full af sársauka. Ótal aðrir hlutir geta komið í veg fyrir að þú fáir það besta út úr lífinu. Áætlun Guðs með líf þitt er að gefa þér góða framtíð þar sem þú leggur traust þitt á hann. Í biblíunni stendur "Fel Guði vegu þína og treyst honum. Hann mun vel fyrir sjá." Opnaðu hjarta þitt fyrir kærleika Guðs, þú munt aldrei sjá eftir því. Guð blessi þig kæri vinur.
Flettingar í dag: 5 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 622 Gestir í gær: 64 Samtals flettingar: 708118 Samtals gestir: 78046 Tölur uppfærðar: 10.9.2010 00:15:18 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Framundan: Sunnudagssamkomur eru á sunnudögum kl. 11:00. Barnapössun á meðan á samkomu stendur. Celebrate Recovery 12. spora fundir eru á mánudagskvöldum kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla, alltaf. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 05 Reikn: 71728 Tenglar
|