Að knýja fram eða knýja á.
Guð er alltaf að kenna mér eitthvað nýtt, undanfarið hef ég mikið verið að skoða sjálfa mig með hjálp Guðs og góðra manna. Eitt af því sem hann hefur virkilega verið að sýna mér og við að skoða í sameiningu er hvernig ég á það til að vilja knýja fram hluti eftir mínum vilja og mínu viti. Stundum dettur mér eitthvað snjallræði í hug, eitthvað frábært sem er á þeim tímapunkti alveg svarið, lausnin og sannleikurinn í mínum huga. Svo oft hef ég farið af stað í að knýja fram í bænum mínum, þar sem ég hef beðið Guð eða sagt honum hvernig er best að gera hlutina. Oft er ég sjálf búin að hugsa allt til enda og fá niðurstöðuna jafnvel áður en ég ber ósk mína upp fyrir Guð. Á sama tíma og bæn mín er verði vilji þinnJ
En Guð er svo frábær og hefur eflaust gaman af þegar ég bið mig hása og segi honum hvað hann á að gera. Ég sé hann fyrir mér þolinmóðan, kæleiksríkan og yndislegan meðan hann bíður eftir að komast að, brosandi út að eyrum og bara elskar mig. Oft og svo oft hefur hann alls ekki ætlað sér að nýta mínar snilldarlausni. Í kærleika sínum hefur hann leiðrétt mig, agað og þroskað í að hlusta á hvað HANN hefur að segja, hvað HANN ætlar, hver HANS lausn er. Alltaf og alltaf, ekki bara stundum, er hans lausn svo miklu betri og svo miklu, miklu réttari og léttari inn í allar kringumstæður.
Guð segir okkur í orði sínu:
,, Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munum finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða" Lúk. 11:9
Guð segir okkur að knýja á og fyrir okkur mun upplokið verða og hver er það sem líkur upp ? Jú hann sjálfur á sínum tíma og eftir sínum vilja sem er alltaf hinn fagri, góði og fullkomni fyrir okkar líf. Það eina sem við þurfum að gera er að biðja og leggja hlutina í hans hendur ekki svörin, ekki lausnirnar heldur þrár okkar, hugarangur og vandamál og treysta því svo að rétt svar komi á réttum tíma.
Sem áhugamanneska um íslenska tungu fletti ég upp sögninni að knýja í samhengi þess að knýja á og knýja fram. Mig langar að láta fljóta með skýringar sem ég fann og hvetja þig til að biðja heilagananda að hjálpa þér að vera sá sem stöðugt knýrð á en ekki sá sem knýr fram.
Að knýja fram
Pressa
Særa
Þrýsta
Þröngva
Reka á eftir
Heilaþvo
Þvinga fram
Að knýja á
Gagna á eftir
Leita eftir
Sækja á
Fylgja eftir
Ganga nærri
Guð blessi þig !
Dagbjört.
_____________________________________________________________________________
4.desember 2008
Hverjum getum við treyst?
Fólk á oft erfitt með að treysta öðru fólki, af hverju? Jú fólk bregst, fólk særir, fólk lýgur, fólk lítillækkar, fólk er MANNLEGT!!! Það er aðeins einn sem gerir ekkert af þessu og það er að sjálfsögðu Guð almáttugur. Á tímum sem þessum hugsa margir ,,það er bara ekki hægt að treysta neinum" en það er ekki rétt því það er alltaf hægt að treysta Guði. Sama hversu erfiðar aðstæður okkar eru þá mun Guð aldrei bregðast okkur aldrei, aldrei. Ég hef upplifað erfiðar kringumstæður þar sem mér fannst Guð hafa yfirgefið mig og skilið mig eftir eina í djúpum dal. Ég bað og bað en ekkert gerðist, allavega ekki eins og ÉG vildi það. Ég hef nefnilega oft ákveðnar skoðanir á því hvernig ég vil hafa hlutina og býst þá við að Guð svari mér eftir mínu höfði og mínum vilja. En eftir á að hyggja hef ég séð að þótt mér finndist ekkert gerast þá gerðist heilmargt því að Guð svarar öllum bænum en Hann svarar þeim ekki eftir mínu höfði heldur því sem mér er fyrir bestu því jú Hann þekkir mig betur en ég þekki mig sjálf. Guð er trúfastur og Hann mun aldrei bregðast okkur sama þótt við bregðumst Honum. Hann mun alltaf svara bænum okkar, hugga okkur og blessa á allan hátt. Margir sem þekkja ekki Jesús hafa ekki þetta traust og finnst þeir því ekki geta treyst neinum. Það er mjög sorgleg staðreynd en sönn þó. Við sem þekkjum Jesús vitum að við getum treyst honum af öllum huga og hjarta. Þeir sem eiga Jesús í hjarta sér vilja líkjast honum sem mest og þar af leiðandi reynir það fólk að vera heiðarlegt, kærleiksríkt og umvefjandi við aðra. Ég hef sjálf fengið að reyna það að ég veit að ég get einnig treyst flestu því fólki sem ég hef kynnst á undanförnum árum því það fólk á Jesús í hjarta sér. Ég er ekki að segja að fólk verði fullkomið á því að hleypa Jesús inn en það er annað mál að þeir sem gera það biðja Guð um að hjálpa sér að verða betri manneskjur og Hann gerir það að sjálfsögðu og smátt og smátt breytist fólk en það þarf alltaf að hafa Guð sér við hlið og stöðugt að vera meðvitað um brestina sína og biðja Drottinn um hjálp við að fjarlægja þá. Það er staðreynd að þegar maður hleypir Frelsaranum inn breytist allt í lífi manns til hins betra. Hvað er betra en að hafa algóðan Guð sér við hlið og ég tala ekki um eins og á tímum sem þessum, fullvissa um að Hann sem sigraði dauða og gröf muni leiða okkur í gegnum þennan róstursama tíma. ,, Þeir sem þekkja nafn Þitt treysta Þér því að Þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til Þín leita," Sálm. 9:11.
Horfum á Jesús, leggjum allt okkar traust á Hann því Hann mun aldrei bregðast AMEN!!!
Guð blessi þig, Ragnheiður.
_____________________________________________________________________________
26.11.2008
Hvað skiptir máli í lífinu?
Undanfarnar vikur hef ég mikið verið að hugsa um hvað það er sem skiptir máli í lífinu. Það er svo margt í þessum heimi sem er fallvalt, svo margt sem við höfum enga stjórn yfir. En það sem gefur mér gleði og mikla von í hjartað mitt er það að Guð hefur alla stjórn, Guð hefur allt í sinni stóru hendi. Það segir í orði Guðs "Ég þekki þær fyrirætlanir sem ég hefi í hyggju með yður, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju að veita yður vonarríka framtíð". Það er sama hvað gengur á í þjóðfélaginu og það er sama hvað gengur á í okkar persónulega lífi, við getum treyst því og trúað að Guð hafi fyrir okkur fyrirætlanir til heilla og vonarríka framtíð.
Sumt sem gerist skiljum við ekki en ég las það einu sinni að vegir Guðs eru órannsakanlegir og það er oft ekki fyrr en seinna að við skiljum hluti sem við skiljum ekki í dag. Orð Guðs segir líka að allt samverki til góðs fyrir þá sem elska Guð. Þessu trúi ég svo sannarlega og hef reynt það persónulega í mínu lífi.
Það sem mér finnst vera jákvætt við allt það sem er í gangi í þjóðfélaginu er að fólk er að byrja að meta hluti upp á nýtt. Til að mynda hefur maður séð að fólk byrjar að meta fjölskylduna upp á nýtt. Fólk er farið að gefa sér tíma. Fólk er farið að hittast og gera slátur og jafnvel laufabrauð. Fólk er farið að forgangsraða börnunum sínum á réttan hátt og sinni nánustu fjölskyldu svo sem foreldrum og systkinum.
Guð hefur gefið okkur hvort annað og það er svo mikilvægt að vera þakklátur fyrir það. Í gær var ég að ræða við dóttur mína um þakklæti, ég þrái að hún sé þakklát fyrir það sem ég gef henni og mig langar mikið að barnið mitt alist upp við að vera þakklátt. Í kjölfarið að því fór ég að hugsa... tek ég allt sem sjálfsagðan hlut sem Guð hefur gefið mér. Gleymi ég að þakka og heimta bara meira. Veistu! Það er svo margt í okkar lífi sem við tökum sem sjálfsagðan hlut en þeir eru það ekki.
Takk Drottinn fyrir Góða heilsu, takk fyrir yndislega barnið mitt, takk fyrir að hafa gefið mér kærleiksríkan og góða eiginmann, takk fyrir fjölskylduna mína, takk fyrir góða vini, takk fyrir kirkjuna mína, takk fyrir að ég hef alltaf nóg að borða, takk fyrir að ég á gott og öruggt heimili, takk fyrir ....!
Að lokum vil ég skrifa niður frábæran texta úr yndislegu lagi...
Takk, takk Jesús, takk, takk Jesús, takk, takk Jesús, ég vil bara þakka, ég vil bara þakka þér!
Guð blessi þig í dag,
Gunna
_____________________________________________________________________________
19.11.2008
Viltu heyra í Guði?
Ég þrái að heyra í Guði því ég þrái að vera í Hans fullkomnu áætlun. Sú þrá vex bara eftir því sem ég kynnist Guði betur. Mér nægir ekki bara að tala við Hann heldur vil ég heyra þegar Hann talar.
Guð er alltaf að tala þótt ég heyri ekki alltaf í Honum. Ég hef aldrei upplifað það að Guð tali við mig í heyranda hljóði og ég ætla ekki að bíða eftir að það gerist. En ég veit þó um leiðir til að heyra í Guði: ég get lesið í Orðinu Hans í Biblíunni og tekið mér tíma eftir bænastund og hlustað eftir Honum í þögninni. Ég þarf að leggja mig fram við að hlusta eftir Guði. Rödd Hans er svo blíð að ég þarf stöðugt að þjálfa mig í að hafa mín andlegu eyru opin til að heyra og stilla mig inn á Hans bylgjulengd. Samt er rödd Hans ekki beinlínis heyranleg, heldur er sem Hann komi inn í hugsanir mínar þegar ég róa hugann og hleypi Honum að.
Önnur ágæt leið til að heyra í Guði er að fara á samkomu þar sem heilagur Andi starfar í gegnum sitt fólk. Mig langar helst ekki til að missa af einni einustu samkomu í kirkjunni minni, því ég vil ekki missa af því þegar Guð talar. Og þegar maður tilheyrir fjölskyldu Guðs er eitthvað svo yndislegt að vera þar sem hún kemur saman.
Ég vil hvetja þig til að hlusta eftir Guði því Hann bíður eftir því að fá að komast að. Hann er lifandi, kærleiksríkur og persónulegur Guð, og Hann vill gefa þér líf í gegnum sitt Orð.
Ekki sitja heima á sunnudögum þegar fjölskylda Guðs kemur saman.
Komdu og vertu með, þú ert velkominn!
Jesús segir í Jóh. 10:27
"Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir fylgja mér."
Guð blessi þig!
Sigríður Halldórsdóttir
_____________________________________________________________________________
12.nóvember 2008
Frelsi
Þegar Guð frelsar þá frelsar hann okkur frá þeim löstum sem hafa stjórnað lífi okkar og haft áhrif á okkur til hins verra. Allt það sem hefur valdið manni vandræðum í lífinu er sprottið af því að ákvarðanir manns hafa ekki mótast af vilja Guðs. Þær syndir sem maður hefur drýgt hafa bundið mann og haldið í fjötrum.
Þegar ég gaf Jesú líf mitt þá upplifði ég frelsi, ég var frjáls frá því sem hafði bundið mig.Ég upplifði að suma hluti sem ég hafði gert langaði mig ekki lengur til að gera og löngun var komin til að gera vilja Guðs. En hver er vilji Guðs? Samkvæmt orði Guðs er vilji Guðs fyrir líf okkar "hið góða fagra og fullkomna" (Róm 12:2) og Jesús segir sjálfur:
"Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.
Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.
Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt." (Matt 11:28-30)
Það að vera frelsaður eða frjáls er engin byrgði það er ljúft og létt, þetta er ekki boð og bönn og þrældómur þetta er frelsi. Ég rækta trú mína ekki af því að ég hræðist refsingu Guðs eða af því að einhver maður segir mér að gera það heldur af því að ég þrái leiðbeiningu Guðs fyrir mitt líf og vill eiga samskipti við hann. Í Galatabréfinu segir segir:
"Til frelsis frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok."(Gal 5:1)
Lifum í frelsi!
Þorsteinn
_____________________________________________________________________________
5.nóvember 2008
Að taka ákvörðun.
Þessa dagana er ekki ólíklegt að mörgum okkar finnist við vera að líða fyrir rangar ákvarðanatökur fólks sem við vitum engin deili á. Ákvarðanir þessa fólks sem jafnvel voru teknar fyrir mörgum árum kalla í dag fram erfiðar tilfinningar sem tengjast fjárhagslegu öryggi okkar og framtíðarhorfum. Okkur finnst við ekkert hafa að segja í þessum málum og að það eina sem hægt er að gera sé að bíða og sjá hvað úr verður. Við erum vön því að taka ákvarðanir um ýmsa veraldlega hluti. Hvaða nám við förum í, hvernig vinnu við stundum og í hvað við verjum fjármunum okkar. Þetta eru allt mikilvægir hlutir en því miður háðari ytra umhverfi en við töldum. En það er einnig hægt að taka ákvarðanir í andlegum málum og þeim ákvörðunum getur enginn utanaðkomandi spillt fyrir okkur.
Margir þeirra sem ekki eiga sér lifandi Guð virðast telja að trúarvissa hellist yfir fólk af sjálfu sér og að það vakni einn daginn frelsað og gangi með Guði upp frá því. Og þar sem að þeir hinir sömu hafa ekki orðið fyrir slíkri reynslu, er trúin áfram utan seilingar. En staðreyndin er sú að þetta er ákvörðun eins og hver önnur. Hún snýst um að ákveða að reyna að taka Guð inn í líf sitt og gefa síðan þessari ákvörðun tíma og orku. Þau verðmæti sem við munum þá eignast getur enginn frá okkur tekið.
Guð blessi þig og styrki.
Sveinbjörn
______________________________________________________________________________
31.október 2008
Takk Guð, fyrir vandamálin
Í heimahópunum í kirkjunni okkar er nú verið að fjalla um Jakobsbréfið. Jakob nær á einstakan hátt að snerta við mörgum punktum í mannlegu eðli sem flestir ná að tengja við.
Það fyrsta sem Jakob talar um er það hvernig við getum tekist á við vandamál.
Í Jakobsbréfinu 1:2-4 stendur:
Álítið það, bræður mínir, eintómt gleðiefni, er þér ratið í ýmiss konar raunir. Þér vitið, að trúarstaðfesta yðar vekur þolgæði, en þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörir og yður sé í engu ábótavatn.
Öll höfum við einhver vandamál. Vandamálin eru misstór og mjög ólík og þau koma yfirleitt þegar við búumst ekki við þeim. Vandamál er staðreynd lífsins og yfirleitt koma þau vegna þess að menn gera mistök (oftar en ekki við sjálf). Vandamál eru yfirleitt mjög erfið á meðan við tökumst á við þau en þau verða sérstaklega erfið ef við tökumst ekki á við þau.
Ef við hinsvegar með Guðs hjálp tökumst á við vandamálin þá verða þau okkur oftar en ekki til blessunar þegar upp er staðið. Erfiðustu tímarnir í mínu lífi, þegar aðstæðurnar hafa virst vonlausar, hafa orðið til þess að ég hef þurft að treysta Guði meira en áður. Guð er trúfastur þegar við leitum hans og hann hjálpar þeim sem til hans leita. Það hef ég fengið að reyna. Ekki aðeins hefur hann þrengt mig nær sér heldur hef ég staðið uppi sem sterkari einstaklingur á eftir. Í dag horfi ég til baka á vandamál sem einu sinni virtust mjög stór en í dag myndi ég varla kalla þetta vandamál, vegna þess að Guð hefur kennt mér og tekið mig lengra. Ég hef fengið að þroskast, Guð hefur gefið mér þolgæði.
Vandamál munu halda áfram að koma það sem þú átt eftir ólifað en ég hvet þig til þess að líta á þau sem verkefni frekar en vandamál. Verkefni sem þú og Guð vinnið saman.
Guð blessi þig
Aron Hinriksson
_____________________________________________________________________________
22. október 2008
Líf þitt hefur tilgang !
Á tímum sem þessum þar sem fallvaltleiki veraldlegra gæða er augljósari en aldrei fyrr eru eflaust margir sem velta fyrir sér hver sé megin tilgangur þessa lífs. Alltof margir hafa lifað lífi sínu fyrir dauða og innihaldslausa hluti sem halda ekki þegar á reynir. Sannleikurinn er þessi Þú ert skapaður af Guði með tilgang skapaður fyrir Guð, allt er frá Guði sprottið.
Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega, hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt er skapað fyrir hann og til hans.1.Kól:16
Lífið snýst ekki um þig kæri vinur.
Tilgangur þessa lífs er svo miklu meiri og stærri en þínar persónulegu þarfir og/eða óskir um hugarró, hamingju, frama og velgengni í lífinu. Til að skilja tilgang lífsins verður þú að einblína á Guð, þú ert til vegna hans. Menn hafa í gengnum aldir velt fyrir sér tilgangi lífsins og eru svörin æði mörg og mismunandi. Flestir falla í þá sömu gryfju að byrja á röngum enda, á sjálfum sér og velta fyrir sér hvað ætla ÉG að gera við líf mitt, hver eru takmörk mín, draumar mínir ? Það festast í slíkri sjálflægin þar sem útgangspunkturinn er ÉG um MIG frá MÉR til MÍN ekki leiðin til að finna raunverulegan tilgang lífsins.
Orð Guðs segir:
Í hans hendi er líf alls hins lifanda og andi sérhvers mannslíkama.Job.12:10
Mikið hefur verið skrifað af sjálfshjálpar bókum og svo kallaðri "poppsálfræði" þar sem allt gengur út á að er að líta inn á við og ná þannig hugarró, árangri og velgengni í lífinu. Aðferðin er oft sú að setja sér markmið, stefna í ákveðna átt, vera einbeittur osfv. Margir hafa náð mjög góðum árangri á ákveðnum sviðum lífs síns fyrir þessar aðferðir. En það að ná árangri í lífi sínu og uppfylla tilgang líf síns er hreint ekki það sama, það næst ekki fyrir neina skyndilausn skrifaða af mönnum. Þar sem þú skapaðir þig ekki sjálfur er ekki nokkur leið að þú skiljir hver tilgangur sköpunar þinnar og lífs þíns er.
Leggðu sjálfan þig til hliðar og horfðu til Guðs. Þú ert skapaður af Guði fyrir Guð ekki fyrr en þú skilur þá staðreynd muntu skilja tilgang lífs þíns. Guð sem skapaði þig þekkir allt í þér og um þig því veit hann hvað er þér fyrir bestu. Hann þarf ekki að lesa "leiðbeiningarnar" um þig ef einhverjar væru því hann skrifað þær.
Oft á tíðum hættir okkur til að vilja nota Guð á okkar hátt en ekki leyfa honum að nota okkur á sinn hátt og samkvæmt sinni áætlun. Það er dæmt til að mistakast. Í orði Guðs er skýrt kveðiði á að okkar mannlegu hugsanir og áætlanir eru dæmdar til að mistakast en í vilja Guðs er líf og friður.
Hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans líf og friður.Róm. 8:6
Auðveldasta leiðin til að skilja tilgang lífsins er að spyrja skapar lífsins. Guð segir okkur í orði sínu hver tilgangur okkar er
Í honum höfum vér þá líka öðlast arfleifðina, eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans, er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns, Efesus 1:11
Hvernig getur þú þá skilið tilgang líf þíns ?
- Með því að eiga persónulegt samband við Jesú
- Með því að skilja að Guð hefur áætlun með lífið þitt sem þú hefur ekkert um að segja. Hann hafði áætlun með þig áður en þú varðst til.
Þér hefur kannski þótt tilgangur lífs þíns hálf vonlaust, niðurdrepandi og óskýrt.
TIL HAMINGJU ÞÚ GETUR GENGIÐ INN Í LJÓSIÐ MEÐ GUÐI, þar stendur þér til boða líf í fullri gnægð !
Guð blessi þig !
Dagbjört.
_____________________________________________________________________________
15. október 2008
Jesús er SVARIÐ við kreppunni
,,Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld". Matt. 11:28.
Það eru erfiðir tímar víða í heiminum í dag og fólk spyr sig ,,hvað gerðist eiginlega, hvernig gat þetta farið svona"? Margir eiga enga von og líður hræðilega, því allt sem það treysti á þ.e peningar og hið veraldlega er hrunið eins og spilaborg. Ég var á þessum stað sjálf fyrir rúmum 5 árum síðan. Ég setti allt mitt traust á peninga og hið veraldlega. En það kom að því að það hrundi og mér fannst líf mitt og fjölskyldu minnar algjörlega búið og mjög svo óréttlátt í okkar garð. Svo ég hlaupi yfir langa sögu þá komumst við yfir það en púúúffff það var mjög erfitt. Í dag erum við fjölskyldan að byggja hús og við höfum ekki farið vel með peningana okkar undanfarin ár. Við höfum tekið þátt í þessu lífsgæðakapphlaupi og ekki spáð mikið í peningum og haft það bara fínt á veraldlegan mælikvarða. En allt í einu eru allar forsendur breyttar. Við þurfum að breyta áætlun okkar í sambandi við húsið og öllum okkar fjármálum. En í dag upplifi ég frelsi og frið ólíkt fyrir fimm árum þegar mér fannst líf okkar hrynja með peningunum. Hvað hefur breyst? Við eigum Jesú Krist í hjörtum okkar og Hans friður er ofar öllum mannlegum skilningi!!! Mörgum kann að finnast þetta skrítið en þetta er staðreynd. Eins og segir í lagi einu ,, Jesus is the answer for the world today" eða ,,Jesús er svarið við heiminum í dag". Ég veit að öllum þeim sem trúa á Hann samverkar allt til góðs því það stendur í orði Hans og ég hef fengið að upplifa það sjálf. Ég veit að Guð snýr öllum kringumstæðum upp í sigur sama hversu ómögulegar þær virðast vera í okkar augum og Hann gerir það á sínum tíma. Stundum er erfitt að bíða og hef ég sjálf talist frekar óþolinmóð, en það kemur sú stund að hlutirnir lagast, þið getið treyst því. Ef við nýtum þessa tíma í dag til þess að skoða okkur sjálf og hin sanna tilgang lífsins, sem felst í allt öðru heldur en að eiga sem mest af veraldlegum eigum, veit ég að við komum út úr þessu sem sterkari manneskjur og höfum farið þó nokkur spor fram á við í lífinu. Trúið mér Jesús er svarið við kreppunni og hann mun gefa öllum sannann frið sem leita Hans í einlægni. ,,Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir í Kristi Jesú". Filippíbréfið 4:7.
,,Ekkert vandamál er það stórt og engin óhamingja það mikil að ekki megi úr bæta".
Kærleikskveðja,
Ragnheiður Blöndal.
_____________________________________________________________________________
10. október 2008
Má bjóða þér KreppuKNÚS?
Nú eru mjög erfiðir tíma hjá mörgum íslendingum. Það er ótti í fólki og sumum kvíðir fyrir morgundeginum og framtíðinni.
Peningar eru eitthvað sem erfitt er að leggja traust sitt á því þeir eru mjög fallvaltir eins og hefur sést hér á landi undanfarið. Nú sem aldrei fyrr þurfum við íslendingar að standa vel saman, hvetja hvort annað áfram og byggja hvort annað upp með orðum og jafnvel góðum faðmlögum.
Þrátt fyrir mikin óvissutíma og neyð í landinu er hægt að finna frið. Í Biblíunni segir að Guð muni sjá um þá sem leita hans og hann muni sjá um að við höfum allt sem við þörfnum, sbr. fæði og klæði.
"Segið því ekki áhyggjufullir: "Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? ... En leitið FYRST ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning" Matt6:31,33,34
Í enskri þýðingur segir í lok textans. EINN DAG Í EINU!
Mig langar að hvetja þig á þessum tíma til að leita Guðs og taka einn dag í einu. Talaðu við Guð rétt eins og þú talar við fjölskylduna þína. Biddu Guð um að hjálpa þér. Biddu Guð um að gefa þér nýja von, finndu einlægu barnatrúnna að nýju og komdu í kirkju. Kirkjurnar út um allt land standa opnar. Það er einmitt á svona tímum sem við þurfum á Guði og hvort öðru að halda og Guð VILL og hann GETUR hjálpað þér og gefið þér nýjan yndislegan FRIÐ.
Vertu ávallt velkominn og Guð blessi þig
EITT STÓRT KREPPUKNÚS til þín.
Gunna
______________________________________________________________________________
21.maí 2008
i´ve Had Many Tears And Sorrows,
i´ve Had Questions For Tomorrow,
there?s Been Times I Didn?t Know Right From Wrong.
but In Every Situation,
god Gave Me Blessed Consulation,
that My Trials Come To Only Make Me Strong.
through It All,
through It All,
i´ve Learned To Trust In Jesus,
i´ve Learned To Trust In God.
through It All,
through It All,
i´ve Learned To Depend Upon His Word.
i´ve Been To Lots Of Places,
i´ve Seen A Lot Of Faces,
there´s Been Times I Felt So All Alone.
but In My Lonely Hours,
yes, Those Precious Lonely Hours,
jesus Lets Me Know That I Was His Own
i Thank God For The Mountains,
and I Thank Him For The Valleys,
i Thank Him For The Storms He Brought Me Through.
for If I´d Never Had A Problem,
i Wouldn´t Know God Could Solve Them,
i´d Never Know What Faith In God Could Do
Ég sat í sófanum heima hjá mér í morgun og hlustaði á lagið "Through it all" með Andraé Crouch. Þetta lag talaði mjög mikið til mín þar sem ég sat og hugsaði. Í gær var nefnilega einn af þessum dögum þar sem mér fannst ég vera að ganga niður í dal.
Stundum koma nefnilega svona tíma þar sem aðstæður einhvernveginn eru bara svolítið erfiðar. En sem betur fer þá byggist trúarlíf manns ekki á tilfinningum og þó svo manni líði illa einn daginn þá er Guð samt til staðar og er alltaf alltaf hinn sami og með sömu loforð og sömu fyrirheit og hann er með þegar okkur líður vel. Ég veit að það skilja ekki allir ensku en þessi texti segir einhvernveginn allt sem liggur á hjarta mínu. Rétt eins og segir í seinni hlutanum á textanum. "Gegnum allt hef ég lært að treysta á Jesú, ég hef lært að treysta á Guð". "Ég þakka Guði fyrir fjöllinn, ég þakka Guði fyrir dalina, ég þakka Guði fyrir stormana sem hann hefur komið mér í gegnum því ef ég hefði aldrei upplifað nein vandamál og erfiðleika í lífi mínu þá myndi ég ekki vita að hann gæti leyst þau og þá hefði ég aldrei vitað hvað trú og traust á Guð getur gert mikið í lífi manns".
Guð blessi þig,
Gunna
_____________________________________________________________________________
6. maí 2008
Jesús biður fyrir þér !
Ég keypti mér geisladisk um daginn, sem er ekki í frásögur færandi, nema eitt lagið snerti hjarta mitt sérstaklega. Þar segir: "Jesus, you are praying for me. Day and night you are interceding..."
Mér fannst svo yndislegt og mikil blessun að heyra þetta og langaði til að deila því með þér, lesandi góður. Ég hafði lesið þetta áður í Biblíunni, en hafði ekki hugleitt þetta mikið og mér fannst svo gott að láta minna mig á það að sjálfur æðstipresturinn minn, Jesús, biður fyrir mér til Föðurins.
Það er yndislegt þegar kristin systkini biðja fyrir manni, hvað þá að vita til þess að Jesús gerir það! Það er nokkuð magnað!
Áður en Jesús fór á krossinn, bað Hann fyrir lærisveinum sínum. Þú getur lesið um fyrirbæn Jesú í heild sinni í Jóh. 17. kafla. Þar biður Hann meðal annars að Guð varðveiti þá frá hinu illa og helgi þá í sannleikanum, Orði sínu. Svo biður Hann einnig fyrir öllum þeim sem á Hann trúa fyrir orð þeirra, að allir verði þeir eitt. Svo heldur Hann áfram:
24. Faðir, ég vil að þeir, sem þú gafst mér, séu hjá mér, þar sem ég er, svo að þeir sjái dýrð mína, sem þú hefur gefið mér, af því að þú elskaðir mig fyrir grundvöllun heims.
25. Réttláti faðir, heimurinn þekkir þig ekki, en ég þekki þig, og þessir vita, að þú sendir mig.
26. Ég hef kunngjört þeim nafn þitt og mun kunngjöra, svo að kærleikur þinn, sem þú hefur auðsýnt mér, sé í þeim og ég sé í þeim.
Seinna þegar Jesús er stiginn upp til himna, segir Páll í Rómverjabréfinu 8. kafla. (Flettu honum endilega upp og lestu bara allan kaflann, því hann er frábær!)
33. Hver skyldi ásaka Guðs útvöldu? Guð sýknar.
34. Hver sakfellir? Kristur Jesús er sá, sem dáinn er. Og meira en það: Hann er upprisinn, hann er við hægri hönd Guðs og hann biður fyrir oss.
Hann er að biðja fyrir þér núna!
Og við lesum í Hebreabréfinu 7. kafla:
25. Þess vegna getur hann og til fulls frelsað þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir Guð, þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim.
26. Slíks æðsta prests höfðum vér þörf, sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá syndurum og orðinn himnunum hærri.
Hugsaðu þér! Jesús biður fyrir þér. Hann vill að þér takist það sem Faðirinn hefur hugsað með þitt líf og Hann gerir þér það líka kleift. Hvílík hvatning!
Vegna þess að Jesús biður fyrir okkur, getur Hann til fulls frelsað okkur, sem göngum fram fyrir Guð! Já, til fulls. Enda eigum við fullkominn sigur í Jesú Kristi.
Við getum líka skoðað 1. Jóh. 2. kafla:
1. Börnin mín! Þetta skrifa ég yður til þess að þér skuluð ekki syndga. En ef einhver syndgar, þá höfum vér árnaðarmann hjá föðurnum, Jesú Krist, hinn réttláta.
2. Hann er friðþæging fyrir syndir vorar og ekki einungis fyrir vorar syndir, heldur líka fyrir syndir alls heimsins.
Amen!
Við skulum því ekki láta hugfallast þótt á móti blási og við séum ekki fullkomin. Jesús veit allt um það og Hann stendur með okkur, tilbúinn að reisa okkur upp þegar við bregðumst Honum. Hann hefur fullkomnað verkið og ætlar að leiða okkur til fullkomins frelsis. Við þurfum bara að taka á móti því og fylgja Honum.
Tökum á móti fyrirgefningu fyrir syndir okkar í stað þess að láta syndina buga okkur.
Tökum á móti upprisukrafti Hans í stað þess að láta veikleika okkar draga okkur niður og halda aftur af okkur.
Drottinn blessi þig!
Sigríður Halldórsdóttir
______________________________________________________________________________
15.04.08
Að heyra röddu Guðs
Þegar ég og hann Aron minn byrjuðum að vera saman þá gátum við legið í símanum tímunum saman og talað saman. Mig langaði mikið að heyra í honum og langaði að fá að tala við hann. Enn í dag langar mig að heyra í honum á hverjum einasta degi því ég elska hann og hann er maðurinn minn. Ef hann fer í burtu í einhverja daga þá hlakka ég til að heyra í honum og heyra hvað hann hefur verið að gera þann daginn. Eins er það með dóttur mína. Ef hún fer í pössun í einhverja daga og ég fer eitthvað í burtu þá hlakkar mig svo mikið til að heyra í henni og eflaust hlakka ég meira til að heyra í henni en hún í mér. Þegar ég svo heyri í henni líður mér svo vel, því mér líður svo vel ef henni líður vel.
Þannig er þetta líka með Guð. Guð er pabbi okkar á himnum sem þráir að heyra í okkur. Þráir að tala við okkur og vera með okkur. Ég trúi því að hann verði sorgmæddur í hjarta sínum þegar við gleymum að tala við hann eða gefum honum ekki tækifæri á að tala við okkur eða heyra hvernig okkur líður. Málið með Guð er að hann er persónulegur Guð. Hann hefur ekki bara áhuga á okkur þegar okkur líður vel, heldur hefur hann áhuga á okkur alltaf, hvenær sem er og hvernig sem okkur líður. Hann er pabbi sem við getum hringt í hvenær sem er sólarhringsins, hann er pabbi sem er alltaf tilbúin að hughreysta okkur og hvetja okkur áfram, því hann er pabbi sem elskar, ELSKAR okkur mjög mjög mikið.
Mörgum finnst mjög flókið að heyra í Guði. Sumir halda að rödd Guðs birtist þeim sem dimm rödd af himnum ofan. En það er ekki svo. Guð talar á svo margvíslegan hátt og þú hefur eflaust heyrt það oft og lesið það oft. En spyrð þig samt ?hvernig fer ég að því að vita að Guð sé að tala??. Fyrir stuttu síðan hlustaði ég á frábæra kennslu um þetta efni. Í þessari kennslu var meðal annars bent á þá leið að prófa að skrifa niður í dagbók það sem þú ert að tala um Guð við og skrifa niður á móti það sem þér finnst hann vera að svara. Málið er að maður festist svo oft í því að tala og í mínu tilfelli að skrifa niður en gleymir að skrifa niður svörin, gleymir að skrifa niður það sem Guð er að reyna að segja við okkur í þessum kringumstæðum.
Undanfarið hef ég verið að gera þetta markvisst og Guð hefur verið að sýna mér frábæra og líka stundum erfiða hluti. Hann hefur uppörvað mig, hvatt mig áfram, leiðbeint mér og bara elskað mig. Um daginn var ég t.d að fara til læknis. Ég var með mikin frið í hjarta mínu en var pínu kvíðin fyrir því hvernig mér myndi líða þegar ég kæmi frá lækningum aftur. Ég skrifaði þetta allt niður og sat svo kyrr og bara hlustaði og Guð sagði við mig ?Þetta verður allt í lagi, ég fer með þér?. Það var svo yndislegt að heyra þettaJ. Svo fór ég til læknisins og þegar ég kom frá honum langaði mig hreint út sagt að valhoppa og það var ekki út af ytri kringumstæðum heldur vegna þess að ég hafði svo mikin frið í hjarta mínu.
Mig langar að hvetja þig til að prófa þetta. Sestu niður og hlustaðu og vittu til, þú ferð líklega bara að sakna pabba þíns á himnum ef þú heyrir ekki í honum oft á dag. Það upplifi ég allavega.
Guð blessi þig,
Gunna

_____________________________________________________________________________
9.apríl 2008
,,Allt megna ég fyrir hjálp Hans sem mig styrkan gjörir.?
Filip.4:13
Það er yndislegt að hugsa til þess að það er til Guð sem við getum treyst fullkomlega. Ég held að flest okkar hafi upplifað einhverskonar höfnun í lífi okkar sem verður til þess að traust okkar á einhverri/einhverjum/ einhverju bregst. Þessi höfnun hvort sem hún er stór eða lítil situr í okkur og við gerum okkur jafnvel ekki grein fyrir því að eitthvað er að. Það gerir það að verkum að við leyfum okkur ekki að treysta öðrum því við óttumst svo mjög að upplifa þessa sömu höfnun sem að særði tilfinningar okkar á sínum tíma.
Þetta geta verið ,,lítil? atvik t.d vinur eða vinkona hafa sært okkur þegar við vorum börn með því að vilja ekki leika við okkur og þetta geta verið ,,stærri? atvik þar sem t.d annað foreldri hefur hafnað okkur í æsku. Hvort sem er þá situr þessi höfnun í okkur og hefur áhrif á allt okkar líf og brýst þannig fram að við treystum ekki fólki í kringum okkur og kannski ekki einu sinni okkar nánustu. Þetta hefur einnig áhrif á samband okkar við Guð því við eigum það til að yfirfæra okkar mannlegu bresti yfir á Hann.En takið eftir, Guð er skapari himins og jarðar, Hann er fullkominn, Hann er kærleikur, ást, friður og umfram allt yndislegur Pabbi sem bregst aldrei. Hann mun aldrei hafna okkur né yfirgefa okkur,ALDREI!!! Þegar við lærum að treysta Guði 100% þá breytist allt því Hann elskar það þegar við leggjum allt okkar traust á Hann. Sönn tilbeiðsla til Guðs felst meðal annars í því þegar við gefumst upp fyrir sjálfum okkur og felum vandamálin og já bara allt okkar líf í Hans hendur. Það er yndislegt að finna það þegar Guð tekur við í aðstæðum þar sem við erum gjörsamlega máttvana og finnum okkur smá. Við verðum að læra það að yfirfæra ekki mannlega bresti á Guð því Hann er fullkominn og Hann munALDREI bregðast okkur.
,,Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.? Sálm.46:2
Guð blessi þig !
Ragnheiður
______________________________________________________________________________
3. apríl 2008
Hamingja óskast takk...
Vinsæl íslensk hljómsveit söng eitt sinn "lífið er yndislegt, ég geri það sem ég vil." Á undanförnum árum hefur verið mjög sérstakur tími í íslensku þjóðfélagi.
Peningar hafa flætt eins og vatnið á hálendinu og margir hafa gert, já nákvæmlega það sem það hefur viljað. Margir hafa keypt sér dýrari hluti en þeir áður gátu, gert dýrari hluti en þeir áður gátu o.s.frv. Það er jú gaman að geta leyft sér hluti og þurfa ekki að hafa stöðugar áhyggju af næstu mánaðarmótum.
Heldur hefur þó kreppt að í þjóðfélaginu á undanförnum mánuðum. Margir eru nú farnir að sjá fyrir sér að það borgi sig hugsanlega að horfa meira í það hvert peningarnir fara. Mín samúð er öll hjá þeim sem standa frammi fyrir greiðslum sem erfitt eða ómögulegt er að ráða fram úr og því óöryggi sem því fylgir. Öryggi og áhyggjulaust líf er nefnilega hluti af því sem við flest þráum.
Í biblíunni stendur ,,Guðhræðsla samfara nægjusemi er mikill gróðavegur." Kíkjum aðeins á þessi tvö orð "Guðhræðsla" og "nægjusemi." Guðhræðsla þýðir samkvæmt íslenskri orðabók það að bera lotningu fyrir Guði þ.e. að vilja gera Guðs vilja. Erfitt er að ýminda sér betri leið til þess að lifa lífinu, en að lifa því í Guðs vilja vegna þess að Hann veit einfaldlega hvað er best. Hann er höfundur okkar og við megum gera ráð fyrir því að höfundur (skapari) okkar þekki okkur best af öllum, jafnvel betur en við þekkjum okkur sjálf. Orðið nægjusemi hefur samkvæmt fyrrnefndri orðabók þá merkingu "að vera ánægður með það sem hann fær."
Það að treysta Guði , gera vilja hans og að vera ánægður með þau tækifæri sem hann opnar er nefnilega mjög mikill gróðavegur, í sumum tilfellum veraldlegur en í öllum tilfellum andlegur. Það er mér alltaf ótrúlegur léttir þegar ég upplifi það það er hægt að fullkomin frið þrátt fyrir allan óróan sem á sér stað í kringum mig.
Næsta línan í laginu sem minnst var á hér að ofan er svona "skyldi maður verða leiður á því til lengdar að vera til". Svarið er já, það vel hægt að fá leið á lífinu og gefast upp þegar á móti blæs ef við "gerum bara það sem viljum." Ef við gerum hins vegar það sem Guð vill og þar af leiðandi það best er fyrir okkur þá er mjög erfitt að fá leið á lífinu.
Sálmahöfundurinn segir "Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá." Ef við förum eftir þessu ráði þá getum við verið þess fullviss að við getum fengið að upplifa raunverulega hamingju sem er jú einmitt það sem við erum öll að leita að ekki satt...
Aron Hinriksson
_____________________________________________________________________________
25. mars 2008
Ber lífið þitt ávöxt ?
1. Ég er hinn sanni vínviður, og faðir minn er vínyrkinn.2. Hverja þá grein á mér, sem ber ekki ávöxt, sníður hann af, og hverja þá, sem ávöxt ber, hreinsar hann, svo að hún beri meiri ávöxt.3. Þér eruð þegar hreinir vegna orðsins, sem ég hef talað til yðar. 4. Verið í mér, þá verð ég í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, eins getið þér ekki heldur borið ávöxt, nema þér séuð í mér. 5. Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt, sem er í mér og ég í honum, en án mín getið þér alls ekkert gjört. ( Jóh. 15:1-5 )
Jesú kenndi lærisveinum sínum oft með myndlíkingum til að skýra mál sitt. Í þessum versum líkir hann sjálfum sér við vínvið, okkur sem greinum á þeim stofni og föðurnum sem vínyrkja. Þegar störf vínyrkja og vínviðarrækt eru skoðuð í okkar veraldlega heimi er margt athyglisvert sem kemur í ljós. Eina takmark vínyrkjans er að greinarnar beri eins mikinn ávöxt og mögulegt er. Vínyrkinn hugsar því vel um greinarnar til þess að uppskeran verði sem mest.
Nýjar greinar á vínviði hafa tilhneigingu til að hanga niður við jörðina þar sem ryk og drulla truflar vöxtinn. Góður vínyrki fylgist vel með vínviðnum sínum, hans hlutverk er að gæta vel að hverri grein sem er mjög mikilvæg í og dýrmæt. Þegar vínviðurinn er ungur fylgist hann með þeim greinum sem liggja í ryki og drullu, hann skolar þær svo þær geti vaxið eðlilega, hann lyftir þeim upp og stundum bindur hann þær við aðrar greinar sem stuðning meðan þær ná sér á strik. Eins er það með þá sem eru nýjir í trúnni þeir eru veikir og vöxtur þeirra tefst vegna synda og hluta í lífum þeirra (ryk og drulla) sem þarf hreinsa þar þarf að gefa Guði verkheimild til að hreinsa, fjarlægja og binda upp, stundum við aðrar greinar sem stuðningur. Allt þetta gerir Guð ef hann fær verkheimild.
Eldri greinar eiga það til að vaxa of hratt, gera sér eigin sprota sem hindra réttan vöxt, viðurinn á til að verða svo þéttur að sólin nær ekki á staði plöntunar sem hafa með vöxt þrúgunnar/ávaxtarins að gera. Vínyrkinn grisjar eldri plönturnar og fjarlægir auka sprota sem hindra vöxtinn. Á göngu þinni með Guði biður hann þig að sleppa hlutum (grisja) sem hindra vöxt. Þessir hlutir geta verið margvíslegir s.s. fjármálin, áhyggjur, skapgerðabrestir, uppeldi, ótti, vanmáttur, stjórnleysi og allt sem á einhvern hátt getur bundið okkur.
Það er frábært að skoða störf vínyrkja í samhengi með þessari líkingu Jesú, einmitt svona vinnur Guð í okkur. Hann vill að hreinsa okkur og grisja til þessa að við getum vaxið meira. Hann gefur okkur anda sinn til leiðbeiningar, huggunar og visku. Við erum bundin við stofninn (Jesú) og aðrar greinar( kirkjan/fólk) sem stuðning. Líkt og sannur vínyrki vill að við berum ávexti, til þess að geta það hreinsar Guð okkur ( líkt og vínyrkinn á á vínekrum sínum ).
HVAÐ ER ÁVÖXTUR ?
Margir túlka orð Jesú sem svo að við eigum að vinna sálir, það sé ávöxturinn. Það er vissulega köllun okkar að gera það en ávöxturinn er ekki eingöngu bundinn við það heldur líka okkar eigin líf, framgöngu og þroska. Orð Guðs talar mikið um ávexti tengt trúarlífi okkar.Á dögum Jesú var ávöxtur tákn bestu útkomu sem hægt var að fá.
,,En vorir menn eiga og að læra að stunda góð verk til nauðsynjaþarfa, til þess að þeir séu ekki ávaxtalausir?. Títusarbréfið 3:14
,,Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi lækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki. Allt er hann gjörir lánast honum?. Sálm. 1:3
,,En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska,? Galatabréfið 5:22
Ávöxturinn er sá heiður og tign sem við gefum Guði í lífi okkar, við berum mikinn ávöxt þegar við áköllum Guð og reynum að líkjast anda Jesú Ávextir andans eru miklir Guð vill að líf okkar sé yfirfullt af ávöxtum andans !!Við getum alltaf borið meiri ávexti, meiri en okkur grunar. Við erum sköpuð til að vaxa og bera ávexti, sköpuð í yfirflæði
Hvað er það sem getur hindrað vöxt okkar ?
Synd er það sem hindrar vöxt okkar. Þegar við gefum Guði ekki ALLT og fulla verkheimild í lífi okkar berum við ekki þá ávexti sem okkur er ætlað. Syndin heldur okkur frá Guði. Orð Guð er mjög skýrt hvað er synd. Ekki bara stórar syndir s.s morð, stela o.þ.h. heldur líka smærri hlutir í okkar augum sem í augum Guð eru ekki smærri þvi synd er bara synd. Dæmi um slíkt er t.d. slæmt umtal, að hafa ekki stjórn á skapi sínu, treysta ekki.
Hvað hindrar þá fólk í gefa Guði verkheimild í lífi sínu ?
Öll höfum við tilhneygingu til að hlusta á eigið hyggjuvit og vilja ekki horfast í augu við brestina okkar. Ætlum okkur að hafa meira vit en Guð, tökum að okkur að stjórna fyrir hannJ En Guð hefur stærri áætlun en okkur getur órað fyrir.
,,Já mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir eru ekki mínir vegir segir Drotinn. Heldur svo miklu sem himininn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunuJesaja 55:8-9
Þegar við svo loksins auðmýkjum okkur frammi fyrir Guði treystum honum og gefum honum allt fer ávöxturinn að koma í líf okkar. Ávextir anda Guð eru bara góðir og uppbyggilegir, veita frelsi ólíkt fjötrum syndarinnar. Það getur verið sárt að sleppa hlutum úr lífi sínu og gefa Guði en ávöxturinn er mikill.
Mundu að það eraldrei of seint að bera ávöxt, Guð hefur einstaka áætlun fyrir lífi þitt í DAG. Guð getur notað þig á ÖLLUM árstíðum lífs þíns.
Hvatning mín til þín er biddu Guð að rannsaka hjarta þitt og hreinsa burtu slæma ávexti svo þeir góðu geti náð að vaxa fram.
Guð blessi þig ríkulega !
Dagbjört.
______________________________________________________________________________
20.mars 2008
Að þekkja leyndardóma Guðsríkisins
Guðspjallamennirnir Matteus og Lúkas vitna báðir í setningu sem Jesús sagði við lærisveina sína þegar þeir spurðu hann af hverju hann talaði svona oft í dæmissögum. Hann sagði þeim að það væri vilji Guðs að þeir þekktu leyndadóma Guðsríkisins. Það er hins vegar ljóst af viðbrögðum þeirra við ýsmum dæmissögum að þeir skyldi hvorki upp né niður í því sem Jesús var að segja þeim. Hljómar það ekki óþarflega kunnulega fyrir mörg okkar?
Heila mannsins er skipt í tvö hvel, hægra og vinstra heilahvel. Vinstra heilahvel er vinnslustaður rökhugsunnar og staðreynda, hægra heilahvel er vinnslustaður listsköpunnar og tjáningar. Vestrænum mönnum er flestum eðlislegra að starfa í vinstra heilahveli en því hægra vegna áherslna í vestrænum samfélögum á vistmunalega þekkingu.
Biblían er skrifuð í austurlöndum og í þeim menningarheimi fólst þekking manna á upplifun þeirra en ekki rökhugsun. Þegar Biblían talar um að þekkja eitthvað er því undantekningarlaust verið að tala um að þekkja eitthvað af upplifun.
Drottinn vill að við þekkjum leyndadóma Guðsríkisins. Til þess að það geti orðið þurfum við opinberun Heilags Anda. Án opinberunar Guðs lendum við alltaf í vanda með að skilja það sem Guð vill gefa okkur.
,,Þar sem engar vitranir eru, kemst fólkið á glapstigu?(Orðskviðirnir 29:18)
Það er svo margt sem Guð vill gefa okkur sem við eigum erfitt með að skilja. Oft á tíðum trúum við ekki að það góða sem ritningin lofar okkur sé fyrir daginn í dag. Það er eins og allt það góða sem Guð hefur lofað okkur bíði okkar á himnum. Í fyrra Korintubréfi 2:9 lesum við orð sem oft er vitnað til í jarðaförum:
,,Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki og ekki kom upp í hjarta nokkurs manns, allt það sem Guð fyrirbjó þeim, er elska hann.?
Þessi orð eru lesin og talað er um að sá sem er farinn heim til Drottins geti nú loksins séð það sem hann gat ekki séð á jörðu og geti nú heyrt það sem hann gat ekki heyrt hér á jörðu. Að viðkomandi sé loksins búinn að upplifa eitthvað af því sem ekki kom upp í hjarta nokkurs manns. Samt eru þetta hlutir sem Guð vill opinbera þér í dag.
Lesum næsta vers á eftir í sama kafla:
,,En oss hefur Guð opinberað hana fyrir andann, því að andinn rannsakar allt, jafnvel djúp Guðs?
Guð hefur fyrirbúið okkur þessa hluti fyrir daginn í dag. Hann vill að þú þekkir leyndadóma Guðsríkis. Þú hinsvegar nærð ekki að upplifa þessi fyrirheit nema Heilagur Andi opinberi þér hver þú ert í Guði og hvað hann er í þér.
Ég hvet þig til að biðja Guð um opinberanir hans þannig að þú fáir að þekkja leyndardóma himinsins.
Teddi.
_____________________________________________________________________________
26. febrúar 2008
Einstök áætlun
Þegar ég var barn þá velti ég því mjög oft fyrir mér hvað ég myndi verða í lífinu. Ég velti því fyrir mér hvað ég myndi starfa við í framtíðinni, hvort ég yrði ríkur eða fátækur, hvernig ég myndi líta út, hvar ég myndi búa, hvaða konu ég myndi giftast, hvort ég myndi fá að skoða heiminn o.s.frv. Foreldrar mínir hvöttu mig alltaf til að gera mitt besta, vera heiðarlegur og gera það vel sem ég tæki ég mér fyrir hendur . Fyrst og fremst kenndu þau mér þó að hafa Guð númer eitt, láta hann ráða ferðinni.
Þegar við hugsum til baka, höfum við þá ekki öll átt okkar drauma? Sumir draumar hafa ræst og aðrir ekki. Líf margra er alls ekki eins og vonir stóðu til á yngri árum. Margir upplifa vonbrigði þegar þeir komast að því lífið er ekki alltaf fullkomið. Guð hefur áætlun fyrir líf allra manna. Sú áætlun er fullkomin og það besta sem úr lífi okkar getur orðið. Þessi áætlun nær þó ekki fram að ganga að sjálfu sér heldur verður maður að velja að hlýða Guði og að ganga með honum.
Í sálmi 119:9 stendur eftirfarandi:
Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum?
Með því að gefa gaum að orði þínu.
Ég hef komist að því að það besta sem ég gat gert í lífinu var að fylgja ráði mömmu og pabba ? Að hafa Guð númer eitt og leita hans vilja.Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að áætlun Guðs fyrir líf okkar er einstök, algjörlega hönnuð af skaparanum. Þú er algjörlega einstök hönnun og engin mannvera er nákvæmlega eins og þú. Því miður lendum við þó í þeirri gildru að bera okkur saman við aðra. "Ég vil vera svona," "ég vil gera svona," "ég vil eiga svona" o.frv. Slíkur samanburður er hinsvegar skaðlegur og aðeins til þess falinn að brjóta okkur niður og það sem verra er, draga okkur burt frá áætlun Guðs.
Við verðum aldrei nein önnur en við erum , við getum vissulega lært af öðrum en þegar upp er staðið erum við bara við sjálf og við þurfum að lifa með því. Það sem skiptir máli er að við uppgötvum þá hluti sem gera okkur einstök og að við förum að nota þá Guði til dýrðar.
Þú verður aldrei fullkomlega ánægð/ur fyrr en þú lifir í áætlun Guðs með líf þitt og leyfir honum að leiða þig áfram. Guð veit nefnilega hvað okkur er fyrir bestu og ekkert er betra en að vera á þeim stað sem hann ætlar þér.
Guð blessi þig
Aron Hinriksson, forstöðumaður
______________________________________________________________________________
19.02.08
Hvað stjórnar lífi þínu ?
Líf allra stjórnast af einhverju. Sögnin að stjórnast er skilgreind í orðabókum sem það að leiðbeina, ráða eða vísa veginn. Þegar þú ekur bifreið ert það þú sem ert við stjórnvölin. Staldraðu aðeins við og hugleiddu hvað það er sem stjórnar þínu lífi ?
Svo virðist sem líf fólks stjórnist oft af fimm óæskilegum atriðum.
Sektarkennd.
Margir lifa lífi sem stjórnast af sektarkennd. Sumir eyða öllu lífi sínu á flótta undan eftirsjá og skömm. Of oft leyfir fólk fortíð sinni að stjórna og ákvarða framtíð sína. Oft á tíðum ómeðvitað tekur sjálfsásökun yfir og eyðileggur framgöngu og velgengni. Öll eigum við okkar fortíð en við þurfum ekki að vera fangar hennar, áætlun Guðs er ekki afmörkuð við fortíð. Í Biblíunni lesum við um hvernig Guð breytti lífi fólks úr vonleysi í von, Móse var morðingi en Guð breytti honum í leiðtoga. Gídeon var huglaus en varð hugaður og frægur fyrir hetjuskap. Hvernig sem líf þitt hefur verið í fortíðinni þá máttu vita að Guð er sérfræðingur í að snúa lífum fólks til hins betra, að gefa nýtt upphaf.
Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin.
Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð, sá er eigi geymir svik í anda.(Sálm.32:1)
Gremja
Sennilega kannast flestir við að hafa fundið til gremju í lífi sínu. Því miður er það of algengt að menn haldi dauðahaldi í sársaukan sinn og neiti að sleppa. Í stað þess að sleppa tökum á gremjunni og fyrirgefa verður til vonlaus staða þar sem hugurinn er heltekinn af gremju og sársauka. Sannleikurinn er þó alltaf sá að gremja þín særir þig meira en þann sem hún beinist gegn. Oft á tíðum hefur sá sem gremjan beinist gegn ekki hugmynd um það og heldur áfram að lifa sínu lífi á meðan þú ert föst/fastur í viðjum gremju þinnar. Kæri vinur athugaðu að særindi fortíðarinnar verka ekki í lífi þínu nema þegar þú leyfir þeim að hafa yfirhöndina. Fortíðin er liðin tímin ! Ekkert getur breytt því sem liðið er, þú særir aðeins sjálfa/n þig með því að sleppa ekki tökunum. Það er þér fyrir bestu að reyna að draga lærdóm af þessari reynslu þinni og fyrirgefa.
Því að gremjan drepur heimskingjann, og öfundin deyðir einfeldninginn.(Job.5:2)
Ótti
Ótti getur sprottið upp af mörgum ástæðum. Stundum tengist hann slæmri upplifun eða reynslu í fortíðinn oft frá barnæsku. Þeir sem stjórnast af ótta gera það oft ómeðvitað, óttinn rænir tækifærum lífsins. Þeir sem stjórnast af honum fara oft á mis við og sleppa tækifærum vegna ótta síns. Ótti er fangelsi sem heldur þér frá þeirri áætlun sem Guð hefur fyrir þig. Eina leiðin til að sigrast á honum er með vopnum trúarinnar og kærleikans.
Ótti er ekki í elskunni. Fullkomin elska rekur út óttann. Því að óttinn felur í sér hegningu, en sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni.(1.Jóh. 4:18)
Efnishyggja
Alltof margir í nútíma samfélagi eru ofurseldir efnishyggjunni. Ástríða lífsins fer að snúast um hluti og peninga. Sannleikurinn er sá að þeir sem reyna að fylla upp í lífið sitt með peningum verða stöðugt tómari og finnst þeir þurfa meira. Það er algengur misskilningur að meira af peningum sé ávísun á meiri hamingju, það er ekki þannig. Þú munnt hvergi finna það öryggi sem líf þitt þarfnast nema í samfélagi þínu við Guð.
Þörf fyrir samþykki
Álit annarra og samþykki eru driffjaðrir í lífi sumra. Væntingar annarra s.s. foreldra, kennara, maka og vina taka stjórnin í lífinu. Margir fullorðnir eru jafnvel enn að reyna að vinna sér inn eða eignast samþykki og velþóknun foreldra sinna. Almenningsálitið er það sem öllu skiptir í lífi þeirra sem stjórnast af þörf fyrir samþykki. Staðreyndin er því miður sú að þeir sem alltaf fylgja fjöldanum enda með því að týnast í honum. Uppskriftin af því að mistakast er að reyna að þóknast öllum, með því er fullvíst að þú missir af áætlun Guðs fyrir lífið þitt.
Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.(Matt. 6:24 )
Guð vill að við þekkjum tilgang lífsins. Orð Guðs segir okkur hversu mikill ávinningur er af því.
Að þekkja tilganginn með lífinugefur því gildi
Drottinn vill ekki að neitt af þessum hlutum séu í lífinu þínu og komi í veg fyrir að hans áætlun með það nái fram að ganga. Án Guðs hefur lífið engann tilgang og án tilgangs er lífið ástæðulaust. Vonin er frumskilirði í lífi þínu hún er þér jafn nauðsynleg og vatn og súrefni.
Elsku vinur þegar þú byrjar að lifa í voninni og leitar vilja Guðs með lífið þitt byrjar Guð gera stórkostlega hluti. Hann þráir að áæltlun sín nái fram að ganga.
Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður segir Drottinn fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. (Jer.29:11)
En honum, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gjöra langt fram yfir allt það, sem vér biðjum eða skynjum, ( Ef.3:20)
Að þekkja tilganginn með lífinueinfaldra líf þitt.
Það að þekkja tilgang sinn gerir lífið svo miklu einfaldrar. Að vita hvað þér ber og hvað ekki. Í ákvarðanatökum daglegs lífs er einfaldast að spyrja sig: ,, Mun þetta hjálpa til við að uppfylla tilgang Guðs með lífið mitt ? ?
og hefir stöðugt hugarfar. Þú veitir ævarandi frið, því að þeir treysta á þig.(Jes.26:3)
Að þekkja tilganginn með lífinugefur þér réttan ?fókus?(sýn)
Með því að vita hvert þú stefnir og þér er ætlað verður árangurinn meiri og markvissari. Þeir sem vita ekki hvert þeir stefna eru stöðugt að fara í ranga átt og taka rangar ákvarðanir. Þú hugsar kannski með þér að næst takist það, en hversu líklegt er það ?
Verið því ekki óskynsamir, heldur reynið að skilja, hver sé vilji Drottins.( Ef. 5:17 )
Að þekkja tilganginn með lífinuer hvatning þín í lífinu
Að hafa tilgang með því sem við gerum gefur okkur ástríðu fyrir því. Skýr sýn og takmark gefur mikinn kraft.
Að þekkja tilganginn með lífinuundirbýr þig fyrir eilífðina
Margt fólk er mjög upptekið að því að skilja eitthvað eftir sig eftir sinn dag. Veraldleg gæði eru þar ofalega á lista og almenningálitið eins hvernig minning þeirra lifir. Mistökin eru þessi að það skiptir ekki neinu máli hvernig menn minnast þín á jörðinni heldur hvað Guð segir. Það er frammi fyrir Guði sem þú svarar fyrir líf þitt, þú ert á þessari jörð til undirbúning fyrir eilífðina. Einn daginn mundu standa frammi fyrir Guði og svara fyrir lífið þitt.
En þú, hví dæmir þú bróður þinn? Eða þá þú, hví fyrirlítur þú bróður þinn? Allir munum vér verða að koma fram fyrir dómstól Guðs.( Róm 14:10)
Elsku vinur ég hvet þig til að skoða hvað er það sem raunverulega stjórnar lífi þínu. Biddu Guð að sýna þér hvort hann sé ekki örugglega í fyrsta sæti í lífi þínu, biddu heilagan anda að opinbera fyrir þér raunverulegan tilgang lífs þíns.
Drottinn blessi þig ríkulega !
Dagbjört.
______________________________________________________________________________
12.02.08
Eitt með Kristi
Þegar Jesús var skírður átti sér stað einstakur atburður sem skiptir þig og mig verulega miklu máli. Samt er það þannig að við erum ekki að nýta okkur þann sannleika sem þar er opinberaður.
Þegar Jesús tók skírn í ánni Jórdan þá opnaðist himininn og Heilagur Andi steig niður til jarðar í líki dúfu og sagði þessi mögnuðu orð: ?Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann?.Ég hef hvergi nokkur staðar séð neinar vísbendingar um það í Biblíunni að himininn hafi lokast aftur eftir þessa opnun. Það þýðir einfaldlega að hvar sem Jesús er í dag, þar stendur himininn ennþá opin yfir honum.
Kraftur Jesú er þess eðlis að ekkert og enginn stenst hann. Þar sem Jesús er þar er sigur. Sérhvert hné verður að beygja sig fyrir krafti og valdi Jesú. Biblían segir að veldi óvinarins reynir að flýja og fela sig þegar Jesús er annars vegar. Þegar Jesús til að mynda rak út illa anda þá var það honum algerlega áreynslulaust. Hann einfaldlega sagði: ,,farðu" og illi andinn átti engra kosta völ nema að fara.
Til að setja þetta í samhengi við þig og mig skulum við grípa niður í bæn Jesú í Jóhannesarguðspjalli 17:21-23. Þar er hann að tala um þig og mig:
,,Ég bið ekki einungis fyrir þessum, heldur og fyrir þeim, sem á mig trúa fyrir orð þeirra, að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur, til þess að heimurinn trúi, að þú hefur sent mig.
Og ég hef gefið þeim þá dýrð, sem þú gafst mér, svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt, ég í þeim og þú í mér, svo að þeir verði fullkomlega eitt, til þess að heimurinn viti, að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig."
Skoðum þetta aðeins nánar:
Eins klárlega og Jesús og Faðirinn eru eitt, þá eru allir þeir sem gefa Jesú líf sitt eitt með þeim. Það þýðir í raun að hvar sem ég fer - eftir að ég hef gefið Guði líf mitt - þar fer Faðirinn, Sonurinn og Heilagur Andi með mér. Jesús hefur einnig gefi okkur þá dýrð sem Faðirinn gaf honum.
Munum að himininn er ennþá opin yfir Jesú, því samkvæmt ritningunni hefur hann aldrei lokast aftur eftir að hann opnaðist þegar Jesús var skírður. Það þýðir því í reynd að þar sem við erum - vegna þess að við erum eitt með Jesú ? þar er himininn opinn yfir okkur. Það þýðir líka að Guð hefur í Jesú gefið okkur sama vald yfir illu öndum, sjúkdómum og erfiðleikum eins og hann gaf Jesú sjálfum. Ef þér finnst erfitt að meðtaka þetta, lestu þá aftur vers 23 í kafla 17 í Jóhannesarguðspjalli.
,,til þess að heimurinn viti, að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig."
Faðir okkar á Himnum elskar þig jafn mikið og hann elskar Jesú. Það eru umbreytandi tíðindi fyrir þig! Það er síðan okkar að meðtaka og ganga fram í þessum sannleika.
Teddi
_____________________________________________________________________________
07.02.08
Sjálfsvorkunn
Eflaust hafa margir sem lesa þennan pistil einhverntíman upplifað sjálfsvorkunn í lífi sínu. Ef til vill er gott að stoppa við hér örstutta stund og spyrja sjálfan sig heiðarlega ?Hef ég einhverntíman upplifað sjálfsvorkunn?? EF svarið er Já þá hvet ég þig eindregið til að lesa áfram.
Í desember var ég stödd á Indlandi og fór í kristna bókabúð þar. Ég á mjög erfitt með mig þegar ég kemst í kristnar bókabúðir vegna þess að ég elska að lesa og ég elska bækur. Ég keypti margar áhugaverðar bækur. Meðal annars keypti ég bókin ?How to win over Depression? eftir Dr. Tim LaHaye sem sérhæfir sig í að hjálpa fólki. Mér fannst þetta mjög merkileg fyrisögn og ákvað að kaupa þessa bók til að fræðast um það sem hann hefði að segja.
Í þessari bók eru mjög merkilegir kaflar sem tala um það hvernig sjálfsvorkunn getur valdið þunglyndi. Málið með sjálfsvorkunn er að hún er mjög lúmsk en um leið ein aðalrót þess að fólk upplifi vanlíðan í lífi sínu. Vissir þú t.d að sjálfsvorkunn er reyndar ein aðalorsök þynglyndis?
Í bók Dr. LaHaye dregur hann fram formúlu sem tengist sjálfsvorkunn. Formúlan er eftirfarandi:
Mótlæti + mótþrói (reiði)* sjálfsvorkunn = Þunglyndi
Ýmsir kristnir sálfræðingar og ráðgjafar hafa séð það að þessi formúla er að mörgu leyti sönn.
En það óþægilega við sjálfsvorkunn er að það er svo erfitt að viðurkenna að maður eigi við það að stríða,sérstaklega ef hún er að stjórna lífi manns.
Það eru ekki allir tilbúnir að viðurkenna að orsök vanlíðans þeirra sé sjálfsvorkunn því það er oft erfitt að horfast í augu við það að vandamálið sé okkar.
Málið með sjálfsvorkunn er að hún er SYND
SYND... Nú fara ábyggilega margir í fordæmingu og hugsa: Ó, ég er ekki nógu góður kristinn einstaklingur, hvað er að mér, ég er ömurleg/ur?!!!
Málið með sjálfsvorkunn er að hún er tilfinning sem getur oft verið góð/vond. Það getur verið vont að upplifa sjálfsvorkunina en um leið pínu gott því þá vorkennir fólk manni og maður verður ef til vill fórnarlamb aðstæðna.
En málið er að ef við vinnum ekki með sjálfsvorkunina strax að þá getur hún undið upp á sig og orðið svo miklu stærri og meiri en það. Við þurfum að horfast í augu við sjálfsvorkunn sem synd.
Filippíubréfið 2:14 segir: "Gjörið allt án þess að mögla og hika? "
Það að vera tilbúin að horfast í augu við sjálfsvorkun sem synd er rosalega stórt skref í því að ná sigri yfir þessari tilfinningu sem getur verið algjör þræll í lífi okkar.
En þetta er örugglega eitt erfiðasta skrefið. Því staðreyndin er sú að manneskja sem réttlætir sjálfsvorkunina er eins og alkohólistinn sem er ekki tilbúin til að horfast í augu við vandamálið sitt.
Málið er að mannlega séð þá koma upp aðstæður þar sem okkur finnst við eiga rétt á því að vera í sjálfsvorkunn. Við höfum öll lent í því og mannlega talað finnst okkur bara ekkert að því.
Ég hef oft lent í því og stundum bara notið þess að hugsa "aumingja ég?"
Vissuð þið að meira að segja Móses lenti í því að vorkenna sjálfum sér....
"Þá sagði Móse við Drottin:
Hvers vegna leikur þú þjón þinn svo grátt? Hvers vegna finn ég ekki náð í augum þínum svo að ég rísi undir byrði alls þessa fólks. Er ég sá sem var þungaður af öllu þessu fólki? Bar ég það í heiminn? Úr því að þú segir: Berðu þá í faðmi þér eins og fóstra ber brjóstmylking inn í landið sem þú sórst feðrum þeirra. Hvaðan á ég að fá kjöt til að gefa öllu þessu fólki? Því að það grætur frammi fyrir mér og heimtar: Gefðu okkur kjöt að eta. Einn rís ég ekki undir öllu þessu fólki því að það er of þungt fyrir mig. En ef þú ætlar að fara svona með mig, deyð mig þá, finni ég náð í augum þínum svo að ég þurfi ekki að sjá böl mitt lengur? 4. Mósebók 11:11-15
Móses var svo aðframkominn að hann bað um að fá að deyja og það er ekki hægt að segja annað en að það sé alvarlegt stig sjálfsvorkunnar.
Hvað getum við þá gert þegar við upplifum sjálfsvorkunn og alla þá vanlíðan sem henni fylgja?
Við þurfum að játa að sjálfsvorkunn sé synd
"Ef vér játum yndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti" 1. Jóh. 1:9
Við þurfum að biðja Guð um sigur yfir sjálfsvorkuninni
"Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann okkur. Og ef við vitum að hann bænheyrir okkur um hvað sem við biðjum, þá vitum við að við höfum þegar öðlast það sem við báðum hann um" 1. Jóh 5:14-15
"Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir". Filippíubréfið 4:13
· Við þurfum að þakka Guði fyrir kringumstæðurnar sem leiddu af sér sjálfsvorkunina
Ekki alltaf hægt að þakka fyrir kringumstæðurnar sjálfar en það er alltaf hægt að þakka Guði fyrir eitthvað í lífi sínu
"Þakkið alla hluti því að það er vilji Guðs með ykkur í Kristi Jesú". 1. Þess 5:18
"Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú". Fil 4:6-7
Til þess að ná sigri yfir þessari tilfinningu rétt eins og öðrum tilfinningum sem eru vondar og leiða af sér vanblessun þurfum við að upplifa hugarfarsbreytingu.
· Aðeins Guð getur gefið okkur þessa hugarfarsbreytingu.
· Við þurfum að biðja Guð að fylla okkur af sínum Heilaga Anda
"Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn himneski gefa þeim heilagan anda sem biðja hann" Lúkas 11:13
Við höfum öll upplifað þetta á einn eða annan hátt og sumir hafa upplifað meira mótlæti í lífi sínu en aðrir...
EN....
Guð vill blessa þig, gefa þér gleði í kringumstæðunum, gefa þér gleði í lífinu og mæta þér persónulega.
Í GEGNUM Örvæntinguna finnum við oft enn meira fyrir Guði ef við gefum honum tækifæri því myrkrið er oftast svartast rétt fyrir sólarupprás.
Gefðu GUÐI tækifæri í dag til að mæta þér í þínu lífi, hann þráir það svo heitt vegna þess að hann elskar þig.
Guð blessi þig innilega,
Gunna
_____________________________________________________________________________
22.11.07
Ferðalag fyrirgefningar
Ung kona er stödd í brúðkaupi vinkonu sinnar frá því í gamla daga. Hún stendur út af fyrir sig og fylgist með brúðkaupsgestunum. Hún spyr sjálfa sig í huganum, hvernig ætli hann líti út, faðir vinukonu minnar, ætli að honum hafi verið boðið í brúðkaup dóttur sinnar?
Á sínum tíma hafði brúðurinn trúað vinkonu sinni fyrir því að faðir hennar væri drykkjumaður og hefði beitt hana og móður hennar miklu líkamlegu og andlegu ofbeldi og hún vildi ekkert með hann hafa og helst ekki viljað vita neitt af honum.
Allt í einu sér hún brúðina ganga út úr gestahópnum og í áttina að eldri manni. Þau réttu fram hendurnar til hvors annars og ástúðin og kærleikurinn skín á milli þeirra og henni finnst þetta undurfögur sjón, en er samt undrandi í hjarta sínu.
Seinna um kvöldið segir brúðurinn við gömlu vinkonu sína, með ást og umhyggju í augunum: ? Ég elska föður minn. Jafnvel þó hann hafi sært mig og móður mína í gamla daga. Ég get ekki breytt gærdeginum en fyrir hjálp og náð Guðs get ég fyrirgefið föður mínum.?
Það breytir ekki gærdeginum að bæta fyrir brot sín en það gæti samt hjálpað einhverjum til að fyrirgefa og að elska á ný.
Með grundvallarreglur Biblíunnar og visku Tólf sporanna að leiðar ljósi, getur Andlegt ferðalag orðið vegvísir og ferðalag til fyrirgefningar.
Hið andlega ferðalag Tólf sporanna leiðir einstakling inn í þær aðstæður að honum gefst tækifæri til að læra að fyrirgefa sjálfum sér og öðrum. Vakning verður innra með honum þannig að það verður sáttargjörð og fyrirgefningin kemur beint frá hjartanu og er æðrulaus og hrein.
Ferðalagið
Ferðalag fyrirgefningarinnar í gegnum Tólf sporin hefst á að vinna með og stöðva þá framkomu sem særir manneskjuna og hún lærir að viðurkenna þjáninguna sem býr innra með henni. Það er erfitt að bera sársaukann einn því er mikilvægt að deila honum með öðrum. Traust og samhyggð eru mikilvægir þættir til að einstaklingur geti orðað tilfinningar sínar og hugsanir og geti séð sinn innri sársauka í víðara samhengi og í reynslu annarra.
Að ræða líðan sína er mikilvægt í sporavinnunni því þannig vinnst mikilvægt skref í átt að sátt og friði, þannig að sáttargjörð geti orðið. Að viðurkenna reiðina í sársaukanum er hluti af bataferlinu, því reiði sem einstaklingur hefur stjórn á ver lífsviðhorf hans og það er líka hægt að nýta reiðina til að ryðja burt hindrunum sem standa í vegi fyrir eðlilegum samskiptum.
(Af síðunniwww.tru.is)
Fyrirgefning er ferðalag, nokkurs konar innri pílagrímsganga og Tólf sporin, Andlegt ferðalag kenna fólki á varfærinn hátt að treysta Guði sem sínum æðra mætti.
Nánari upplýsingar um 12 spora vinnuna er að finna á síðumAl-anon samtakannaogSamtökin Vinir í Bata .
Guð er skýr þegar kemur að fyrirgefningu. Guð þráir að hreinsa okkur af hverri synd og öllu því sem stendur í vegi fyrir því að við berum ávöxt í honum. Guð þráir náið samband við okkur, samband sem er heilt og hreint án syndar og ófyrirgefningar.
Guð er tilbúinn og þráir að fyrirgefa öllum þeim sem biðja þess
,, Þú Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig" Sálm.86:5
,,Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti" 1. Jóh.1:9
Raunveruleg fyrirgefning telur ekki misgjörðir annara
,,Þá gekk Pétur til hans og spurði: Herra, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum, ef hann misgjörir við mig? Svo sem sjö sinnum? Jesús svaraði: Ekki segi ég þér sjö sinnum heldur sjötíu sinnum sjö". Matt.18:21-22
Þegar okkur hefur verið fyrirgefið eigum við ekki að halda í sektarkenndina. Trúum því að Guð hafi fyrirgefið okkur.
,,Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti: Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni, og þú fyrirgafst syndasekt mína". Sálm.32:5
,,Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin. Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð, sá er eigi geymir svik í anda. Meðan ég þagði, tærðust bein mín, allan daginn kveinaðiég, því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér, lífsvökvi minn þvarr sem í sumarbreiskju. Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti: Ég viljáta afbrot mín fyrir Drottni, og þú fyrirgafst syndasekt mína. Þess vegna biðji þig sérhver trúaður, meðan þig er að finna. Þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi".Sálm.32:1-6
Biddu Guð að sýna þér hvort í þínu lífi leynist ófyrirgefning !
Hann mun sýna þér það í ást sinni og kærleika.
Guð blessi þig,
Dagbjört Eiríksdóttir
_____________________________________________________________________________
16.10.07
Drottinn er góður og miskunn hans varir að eilífu
Logn, vindur og stormur. Þetta eru allt orð og hugtök sem við þekkjum svo vel. Í hinu andlega gildir það sama. Stundum er logn, stundum er smá vindur og stundum kemur hreinlega stormur. Hver einasti maður og hver einasta kona gengur í gegnum erfiðleika í lífi sínu. Sumir halda ef til vill að Guð leggi þessa erfiðleika á viðkomandi en þannig er það ekki. Þegar erfiðleikarnir koma þá er Drottinn alltaf til staðar og hann heldur á okkur í gegnum þá eins og sagan um fótsporin í sandinum lýsir svo vel fyrir okkur. Sagan um Job í Biblíunni lýsir vel fyrir okkur hvernig einstaklingur sem missir allt og þá tala ég um allt nær að halda sig við Guð og nær að treysta honum.
Undanfarna daga hef ég verið að ganga í gegnum erfiðan tíma og í gegnum þessa erfiðleika hef ég þurft að læra að treysta Guði á nýjan hátt. Ég stóð frammi fyrir aðstæðum sem voru óyfirstíganlegir fyrir fólki en Biblían segir að fyrir Guði sé ekkert ómögulegt.
Jesús horfði á þá og sagði: Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en Guð megnar allt. Matteusarguðspjall 19:26
Biblían segir að það samverki allt til góðs fyrir þá sem elska Guð. Það þýðir ekki að Guð skapi erfðleikana til þess að leiða okkur á betri stað heldur þýðir það að þegar erfiðleikar lífsins koma þá vinnur Guð þannig í málunum að það samverki til góðs. Ég hef svo oft fengið að reyna þetta og get því sagt ykkur með fullu trúartrausti að þetta er sannleikur, þetta virkar.
Biblían er full af loforðum, loforðum um að Guð muni blessa, hann muni leysa og hann muni lækna. Mig langar að hvetja þig til að muna eftir þessum loforðum. Lesa þau og hugfesta þau. Ég hvet þig til að biðja þegar stormar lífsins vilja berja þig niður því Drottinn sjálfur getur svo auðveldlega lægt andlegu stormana alveg eins og hann gat lægt storminn á vatninu forðum daga.
Treystu Drottni því hann MUN vel fyrir sjá
Gunnhildur S. Pálmarsdóttir
_____________________________________________________________________________
01.10.07
Samfélag við Guð
Sumar staðreyndir eru yndislegri en aðrar. Ein af þeim er að GUÐ ÞRÁIR AÐ EIGA SAMFÉLAG VIÐ ÞIG! Sú staðreynd hefur ekkert með afstöðu þína, skilning þinn eða trú á þessari staðreynd að gera.
Okkur er tamt að telja að löngun Guðs til samfélags við okkur fari eftir því hversu nálæg við erum honum. Það er athyglisvert að sjá í ritningunni að Guð átti reglulega samfélag við menn þó að þeir væru í miklu tjóni með líf sitt. Þetta sama heyrum við oft í vitnisburðum einstaklinga sem tala um að mitt í eymd þeirra og vansigri hafi Guð talað við þá og leitt þá til réttrar ákvörðunartöku. Málið er að löngun Guðs til samfélags við okkur snýst um vilja hans til að draga okkur nær honum en er ekki verðlaun fyrir að vera nálægt honum.
Sagan um týnda sonin er afar gott dæmi um þetta. Sagan segir frá tveim bræðrum sem áttu góðan pabba. Yngri sonurinn fær þá flugu í höfuðið að fá sinn hlut af arfinum sem honum var ætlaður og njóta þess síðan að vera til. Það gekk eftir og sagan segir okkur að fyrst um sinn hafi verið verulega gaman hjá honum. Fljótlega fór reyndar að halla undan fæti og þegar aurinn var búinn og vinirnir voru farnir fékk hann vinnu við að gæta svína. Þar komst hann loksins til sjálfs síns og sá stöðu sína í réttu ljósi. Hann var að eigin mati búinn að fyrirgera öllu rétti til að vera sonur föður síns. En pabbinn, hann hafði aðra skoðun á málinu. Allan þann tíma sem strákurinn var að eyða auðævunum og brjóta þannig á pabba sínum var pabbinn eingöngu upptekin af því hvenær strákurinn kæmi heim. Hann tók meira að segja frá alikálf sem hann ákvað að slátra til að halda veislu þegar sonur hans kæmi heim aftur. Allan þann tíma sem strákurinn var í burtu var hann samt SONUR pabba síns og hjarta föðurins gagnvart honum hafi EKKERT breyst! Og þannig er okkar himneski pabbi líka. Hann þráir bara að fá að eiga við okkur samfélag, jafnt þegar okkur gengur vel og þegar okkur finnst allt vera í molum.
Njóttu þess að vera barn Guðs og eiga samfélag við hann!

G. Theodór Birgisson
_____________________________________________________________________________
05.09.07
Traust
Í morgun var ég að velta fyrir mér tilgangi lífsins. Lífið er gjöf frá Guði. Það er yndislegt að lifa og það er yndislegt að tilheyra Guði. Stundum koma erfiðleika tímabil í lífi okkar og við skiljum ekki hvernig lausn kemur á málið eða þá hvenær hún kemur. Stundum segjum við eins og ein góð vinkona mín sagði: Drottinn gefðu mér þolinmæði STRAX! Ég hef oft verið á þeim stað og ég hef þráð lausn inn í ákveðinn mál og hef sagt Guði hver besta lausnin væri. En veit ég hver besta lausnin er? Nei? það er aðeins Drottinn sem veit hvað er okkur fyrir bestu og í gegnum lífið þurfum við að læra að treysta honum, treysta því að hann muni vel fyrir sjá, treysta því að hann viti hvað er best fyrir okkur.
Í orðskviðunum 3:5 stendur "Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit"
Málið er að oft á tíðum treystir hjartað Guði en hugurinn segir okkur annað. Við þurfum því að læra að gefa Guði hugsanir okkar og áhyggjur okkar og hann mun vel fyrir sjá. Það kom hluti úr lagi upp í huga minn og mig langar að deila því með ykkur því það er aðeins Guð sem getur fyllt allt tómarúm sem verður í hjarta okkar og huga og það er aðeins hann sem veit hvað er best fyrir okkur. Því hann er jú Pabbi okkar á himnum sem vill blessa börnin sín en hann veit hvernig er best að blessa.
Aðeins þú færð fyllt mitt hjarta hlátri,
Aðeins þú færð gefið mér nýtt líf,
Aðeins þú færð mætt því sem ég þrái
Aðeins þú færð svarað minni bæn.
Gunnhildur S. Pálmarsdóttir (Gunna)
_____________________________________________________________________________
08.07.07
Að loknu Kotmóti
Að baki er frábært Kotmót sem blessaði afar marga. Guð snerti við fólki á sérstakan hátt og margir fóru heim með nýjan eld í hjarta sínu. En það eru líka margir sem eru að velta því fyrir sér hvað Guð muni gera í framhaldinu. Athugasemdir eins og þessi brenna á vörum margra: ,,það verður spennandi að sjá hvað Guð gerir heima í söfnuðinum eftir þetta mót"? Það er vissulega spennandi að fylgjast með því sem Guð mun gera en það er eitthvað sem kemur okkur ekki á óvart. Hann er löngu búinn að segja okkur hvað hann ætlar að gera. Hann ætlar að halda áfram að úthella anda sínum yfir alla þá sem vilja þiggja frá honum.
Það er aðeins spurinng um hvað við ætlum að gera með það sem Guð er að gera. Ætlum við að leyfa Guði að flæða um líf okkar, móta okkur og njóta nærveru hans eða ætlum við færa okkur smá saman aftur í gamla horfið sem við þekkjum svo vel. Guð er að gera nýja hluti og það sem einkennir nýja hluti er að þeir eru ólíkir gömlu hlutunum. Sú úthelling Heilags Anda sem við nutum á Kotmóti er að vísu ekki ný en fyrir okkur flest var hún fersk og þar af leiðandi ný í okkar lífi. Guð var að leyfa mér að upplifa nýja hluti í honum vegna þess að ég leyfði mér loksins eftir öll þessi ár á göngunni með honum að njóta þess sem Guð hafði ætlað fyrir líf mitt öll þessu ár.
Ég veit hvað ég ætla að gera það sem eftir er lífs míns: Ég ætla að standa í árfarvegi Guðs og drekka í mig Heilagan Anda og njóta þannig alls þess besta sem Guð hefur fyrir líf mitt. Þessa ákvörðun getur engin tekið fyrir mig en það getur líka engin nema ég stoppað mig í þessari ákvörðun. Það sama gildir fyrir þig ? það er þín ákvörðun hvort þú meðtekur það sem Guð vill gefa þér. Það getur engin tekið þá ákvörðun fyrir þig. Vertu með mér í því að meðtaka frá Guði og dvelja í nærveru Heilags Anda á hverjum einasta degi. Það er ekkert til betra en það!

G. Theodór Birgisson