Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Um kirkjuna

 Hvítasunnukirkjan Selfoss

netfang: skrifstofa@selfossgospel.is

sími: 6949498

Hvítasunnukirkjan á Selfossi er lifandi kirkja þar sem öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við sitt hæfi. Forstöðuhjón kirkjunnar eru Aron Hinriksson og Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir og starfa þau sem kennarar á Selfossi með starfinu í kirkjunni.

Í kristinni trú finnur fólk frelsi og frið, sem hvergi er annarstaðar að finna.  Einkennisorð kirkjunnar okkar eru einmitt "lifðu í frelsi." Aftur og aftur sjáum við hvernig fólk eignast nýtt og betra líf þegar það upplifir kærleika Guðs.

Kirkjan á Selfossi er hluti af Hvítasunnukirkjunni á Íslandi sem telur u.þ.b. 10 kirkjur víðsvegar um Ísland.  Sameignileg verkefni kirknanna er m.a. að halda "Kotmót" en það er stórt fjölskyldumót (2500-3500 manns.) sem haldið er um verslunarmannahelgina í Kirkjulækjakoti í Fljótshlíð.
 
Hvítasunnukirkjan á Íslandi er þó frekar smá í samanburði við fjölda Hvítasunnumanna á heimsvísu en talið er að á milli 400-500 milljónir Hvítasunnumanna sé í heiminum.

Ástæðan fyrir því að við köllumst Hvítasunnukirkja er sú að við erum mjög opin fyrir verki Heilags Anda en eins og biblíufróðir einstaklingar vita þá var Heilögum Anda úthellt á Hvítasunnudag (sjá postulasöguna 2. kafla)

Messuformið í Hvítasunnukirkjunni er frjálslegt og einkennist af mikilli gleði. Tónlistin er lífleg og yfirleitt taka flestir kirkjugestir þátt í söngnum.  Raunverulegur boðskapur sem fólk skilur er predikaður.  Boðið er upp á barnastarf fyrir börnin á meðan samkomunni stendur. 


Þú ert velkomin/nn að kíkja í kirkju

Flettingar í dag: 61
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014806
Samtals gestir: 133622
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 03:55:44

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is