Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2012 Janúar

21.01.2012 20:20

Safnaðarfundur

Sunnudaginn 22. janúar verður safnaðarfundur í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi. 

Fundurinn fer fram eftir samkomuna en á milli verður boðið upp á góðmsæta súpu.

Fundurinn er fyrir þá sem eru virkir í starfi kirkjunnar eða hafa áhuga á því að vera það.
Endilega mætum sem flest og ræðum saman málefni sem varða framtíðina.

Afþreying verður fyrir börnin á meðan á fundinum stendur.

17.01.2012 08:17

Ný heimasíða CR

Nýlega opnaði ný heimasíða Celebrate Recovery 12. spora starfsins á Íslandi. Þú getur skoðað síðuna með því að smella hér!

Nýlega byrjuðu einnig Celebrate Recovery þættirnir Lifðu í frelsi á Lindinni. Þættirnir eru frumfluttir á þriðjudögum kl. 18:00 og endurfluttir á fimmtudögum kl. 09:00 og sunnudögum kl. 18:00. Einnig er hægt að hlusta á Lindina á netinu á heimasíðu Lindarinnar - Lindin.is

11.01.2012 17:19

Bænavika

Bænavika

Nú stendur yfir bænavika í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi. Bænastundir eru alla virku dagana kl: 19:00 nema á fimmtudag þegar stundin er kl: 20:00. Endilega mætum sem flest og tökum í bænastrengin.

08.01.2012 18:06

Hjálparsjóður Hvítasunnukirkjunnar

Úthlutunarreglur hjálparsjóðs Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi hafa verið endurskoðaðar.

Þetta hefur verið gert til þess að aðstoðin nýtist sem best þeim sem mest þurfa á henni að halda.

Einnig verður tekin upp sú nýbreytni að bjóða upp á stutt, hagnýtt og ókeypis fjármálanámskeið.

Smellið hér til að skoða nýjar úthlutunarreglur

05.01.2012 11:19

Sunnudagurinn 8. janúar

Á samkomu sunndaginn 8. janúar, verður formlega opnun á heimasíðu Celebrate Recovery á Íslandi. Slóðin er: http://www.celebraterecovery.is/

Endilega komdu á samkomu, lofaðu Guð, hlustaðu á góða predikun og vertu með..... 
  • 1
Flettingar í dag: 307
Gestir í dag: 92
Flettingar í gær: 1118
Gestir í gær: 179
Samtals flettingar: 1023245
Samtals gestir: 135830
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 17:42:53

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is