13.08.2011 04:03
Hópur frá Selfossi er nú staddur á árlegri heimsráðstefnu Celebrate Recovery sem fram fer í Bandaríkjunum þessa dagana. 3200 mann sækja ráðstefnuna í ár sem er 20 ára afmælisráðstefna. Mikið er að gerast út um allan heim í starfi Celebrate Recovery og hundruðir þúsunda eignast árlega betra líf og lækningu á sárum lífsins. Þetta þekkja þeir íslendingar vel sem hafa sótt starfið á Selfossi.
Celebrate Recovery fundir eru alla mánudaga kl: 20:00 í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi. Allir eru alltaf velkomnir.
