Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2008 Nóvember

19.11.2008 09:36

Ný skoðanakönnun

Ný skoðanakönnun er komin hér á vinstri hönd fyrir neðan bók mánaðarins. Við hvetjum þig til að taka þátt í þessari könnun til þess að við getum vitað hver þín ósk er varðandi samkomutíma. Við bendum á að einungis er marktækt ef hver og einn kýs einu sinni.



Með von um góða þátttöku!

18.11.2008 19:47

Lean on me

Það er mikivægt fyrir alla einstaklinga að eiga góða vini. Í Biblíunni er lögð áhersla á mikilvægi góðra vina. Í Orðskviðunum 17:17 stendur "Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir". Hér fyrir neðan er lagið "Lean on me" sem talar um mikilvægi góðra vina og hversu mikilvægt er að standa saman í gegnum lífið. Mín persónulega reynsla er sú að vinir eru mun mikilvægari en ég hef nokkurntíman áður gert mér grein fyrir, því þegar á reynir er svo gott að geta hallað sér upp að einhverjum sem er sterkari en maður sjálfur. Guð blessi þig í dag, Gunna

17.11.2008 16:44

Bæn fyrir Íslandi

Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 12 safnast bænakonur saman fyrir utan Stjórnarráðið í Lækjargötu og biðja fyrir þeim sem fara með völdin  í landinu. Við sem þekkjum mátt bænarinnar getum breytt miklu með því að sameinast í bæn og biðja Guð að veita þeim visku og dug.



Hvetjum allar konur til að mæta! 

16.11.2008 17:37

Sunnudags samkoman

Samkoman í dag (sunnudag) var frábær og gott orð var talað út, um það að skoða líf sitt og gera upp fortíðina.  Guð er góður og Hann vill fá að hreinsa líf okkar og losa okkur við allt gamla draslið og setja góða hluti í staðin.



15.11.2008 14:55

Karla morgunverður

Borðin svignuðu undan beikoni, eggjum og öðrum kræsingum í morgun þegar karlarnir úr kirkjunni komu saman heima hjá Valdimar. Í boði var ALVÖRU morgunverður:) Síðan áttum við frábært spjall og uppbyggjandi samfélag. Þið sem ekki komust í dag, endilega verið með næst.

Guð er góður og fyrir Hann viljum við lifa.

Guðsmenn, karlastarf Hvítasunnukirkjunnar hittist reglulega og eru allir karlmenn velkomnir að vera með. 

Morgunverður





14.11.2008 09:10

Jólatónleikar Fíladelfíu

 

Hinir árlegu og sívinsælu jólatónleikar Fíladelfíu "Fyrir þá sem minna mega sín" verða haldnir dagana 1.-3. desember. Tvennir tónleikar verða hvert kvöld fyrir sig, eða kl. 19 og aftur kl.21.

Miðasala hefst fimmtudaginn 13. nóvember kl.10:00
Miðaverð er 3500 kr.

12.11.2008 10:12

Nýr pistill

 Pistill vikunnar að þessu sinni er eftir Þorstein Jóhannesson. Hann hvetur okkur til að lifa í því frelsi sem okkur er ætlað.
Góð áskorun fyrir okkur öll. LIFÐU Í FRELSI !!

12.11.2008 09:59

Bókabúðin LÍF

Nú er komið mikið af nýjum titlum í bókabúðina LÍF, bæði af bókum og geisladiskum. Í dag viljum við sérstaklega kynna bókina "Allir geta eldað" eftir Aðalbjörgu Reynisdóttur. En þessi bók sýnir hvernig má útbúa veislu án mikillar fyrirhafnar og gefin eru heilræði sem létta lífið.

Allt andvirði bókarinnar rennur til ABC barnahjálpar.  Bókin kostar 1.980 kr og er tilvalinn í jólapakkann!

Allir geta eldað

09.11.2008 13:58

Samkoman

Samkoman í dag var tileinkuð bænadegi fyrir ofsóttu kirkjunni í heiminum.  Við þurfum að vera dugleg að biðja Guð um að mæta bræðrum okkar og systrum sem verða fyrir ofsóknum víðsvegar um heiminn.

Bókabúðin



Í dag var opnuð lítil bókabúð í kirkjunni sem ber heitið Bókabúði LÍF.  Boðið er upp á fjölbreytt úrval af kristilegum bókum og geisladiskum.  Endilega kíkið í búðina, hún verður alltaf opin eftir samkomur og eftir samkomulagi.

08.11.2008 21:42

ABC Kenýa

Nýlega var framið vopnað rán í skóla ABC í Kenýa. Hægt er að lesa fréttina um þetta mál á vef mbl.is með því að smella hér

Við hvetjum þig eindregið til að rétta ABC hjálparhönd því þar er mikil neyð eins og málin standa í dag. 


06.11.2008 16:08

Keep singing með Mercy me

Þetta lag er frábært og á vel við í aðstæðum sem eru þér ef til vill ofviða. Hlustaðu vel á textan og leyfðu Guði að vinna í lífi þínu á meðan.

06.11.2008 07:43

Bæna átak - allir með

Nú er í gangi bæna átak fyrir landinu okkar.  Upplýsingar eru hér að neðan en þú getur tekið þátt hvar sem þú ert á landinu.  Það eina sem þú þarft að gera er að taka þér tíma til að biðja.

Bæn og lofgjörð

05.11.2008 13:38

Nýr pistill

 Pistill vikunnar er að þessu sinni eftir Sveinbjörn sem veltir fyrir sér ákvarðanatöku og skorar á alla að taka hina einu sönnu ákvörðun.
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 343
Gestir í gær: 78
Samtals flettingar: 1066722
Samtals gestir: 142520
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 02:16:08

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is