Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2008 Nóvember

30.11.2008 13:46

Samkoma dagsins

Í dag fengum við frábæra heimsókn þegar Herbert Guðmundsson kom og sagði okkur sögu sína auk þess að taka lagið. Frábært að heyra söguna hans. Herbert er nýbúin að gefa út diskinn spegill sálarinnar og er hann til sölu í bókabúðinnu LÍF sem staðsett er í kirkjunni. Aron predikaði síðan úr orði Guðs.

Herbert að taka lagið


28.11.2008 12:55

Holiday með Crystal Lewis

Bókabúðin Líf kynnir jóladiskinn Holiday með Crystal Lewis. Þetta er frábær diskur með skemmtilegum og góðum jólalögum í jazz stíl. Hægt er að hlusta hér fyrir neðan á Crystal Lewis syngja lagið "Joy to the world" á jólatónleikum.

27.11.2008 15:17

Unglingasamkoma fellur niður í kvöld!

Því miður fellur samkoman niður í kvöld en við sjáumst hress næsta fimmtudagskvöld kl.20:30

Kær kveðja, Unglingaleiðtogaremoticon

26.11.2008 20:17

Nytjamarkaðurinn undirbúin

Skilti

Nú stendur undirbúningur fyrir nytjamarkaðinn yfir með fullum krafti.  Á fimmtudag, föstudag og laugardag verður unnið að uppsetningu markaðsins í Kjarnanum á Selfossi. Allir sem geta eru hvattir til þess að koma og leggja hönd á plóginn því verkefnin eru mörg. Þeir sem vilja koma og hjálpa til geta hringt í síma 6949498 eða bara hringt á staðinn.

Einnig eru allir hvattir til þess að taka til í geymslunni og gefa hlutina sem hafa setið þar lengi og engin þörf er fyrir lengur. Húsgögn, húsbúnaður, skraut, eldhúsdót föt o.s.frv.  Allt kemur til greina. Við getum sótt þá ef þú kemst ekki sjálf(ur) með þá. Þú getur hringt í síma 8936166 og þá sækjum við þá. 

Verum öll með í því að taka þátt í þessu spennandi verkefni.

  

26.11.2008 10:12

Nýr pistill

 Hvað skiptir máli í lífinu ? Þessari spurningu veltir Gunna pistlahöfundur vikunnar fyrir sér. Spurning sem allir ættu að spyrja sig emoticon

26.11.2008 09:58

Hillsongs - Celebrating Christmas

Bókabúðin Líf kynnir diskinn Celebrating Christmas með Hillsongs. Þessi diskur er frábær og kostar einungis 2.000 krónur. Hægt er að hlusta á nokkur vel valin brot af disknum hér fyrir neðan.

23.11.2008 19:51

Undirbúningsfundur fyrir nytjamarkað

Mánudaginn 24. Nóvember verður undirbúningsfundur fyrir nytjamarkaðinn. Fundurinn verður í kirkjunni og byrjar kl: 20:00.  

Margir þurfa að leggja hönd á plóginn til þess að þetta spennandi verkefni gangi upp og því hvetjum við sem flesta til þess að mæta.

23.11.2008 19:38

Helgin

Í dag, sunnudag talaði Alyn Jones til okkar hér í kirkjunni á Selfossi.  Frábært orð sem fjallar um gleðina sem fellst í því að gefa. 



Frumherja úr Royal Rangers í Reykjavík heimsóttu okkur hér á Selfossi á laugardag.  Krakkarnir áttu frábæran dag saman og heimsóttu meðal annans logreglu og sjúkraflutningarmenn á Selfossi.





22.11.2008 14:52

Alyn og AJ

Nú um helgina er frábært mót í gangi í Kærleikanum.  
Alyn og AJ Jones eru að kenna um hið spádómlega og að ganga fram í því.  
Þau munu síðan koma á Selfoss á morgun sunnudag og
tala á samkomu hjá okkur kl: 11:00.  

Alyn Jones

22.11.2008 09:13

Nytjamarkaður fyrir þá sem minna mega sín

Í byrjun Desember opnar kirkjan nytjamarkað í Kjarnanum á Selfossi til styrktar ABC barnahjálp og þeim sem minna mega sín á okkar svæði.  Þessa dagana er verið að safna hlutum, fötum, húsgögnum, bókum og ýmsu öðru til þess að selja.  Lumar þú á einhverju góðu?  Allt er vel þegið til að gera markaðinn sem glæsilegastan.  Okkur vantar einnig fullt af góðu fólki til þess að hjálpa til við uppsetningu og rekstur markaðarins.  Tekið er við munum í kirkjunni þegar eitthvað er að gerast þar en einnig er hægt að hringja í Ragnheiði í síma 8936166 og þá getur þú annaðhvort komið með munina eða þá að við sækjum.  Undirbúningsfundur verður auglýstur mjög fljótlega.
  

Nytjamarkaður

21.11.2008 08:10

Cinderella

Steven Curtis Chapman er frægur tónlistarmaður í kristna geiranum. Í dag er hann á tónleikaferðum með Michael W. Smith. Steven og kona hans áttu þrjú börn þegar Guð talaði til þeirra um að ættleiða fleiri börn. Þau ættleiddu þrjár litlar stúlkur á nokkurra ára tímabili og hafa verið samheldin fjölskylda. Nú í maí misstu þau yngstu dóttur sína Maria Sue og varð mjög mikil sorg í fjölskyldunni. Stuttu áður en hún dó hafði Steven samið lag sem kallað er Cinderella en það lag samdi hann í kjölfarið að því að hann var að baða litlu stúlkurnar sínar tvær en þær stukku alltaf upp úr baðinu til að klæða sig í öskubuskubúning. Þetta er yndislegt og hjartnæmt lag sem lætur mann ekki ósnertan. 

20.11.2008 10:56

Útgáfutónleikar

Útgáfutónleikar Herberts Guðmundssonar verða haldnir í Fíladelfíu Hátúni 2, í kvöld kl: 21:00 ásamt hljómsveit og Gospelkór.

Miðaverð: Aðeins 1900kr.


19.11.2008 12:19

Nýr pistill

 

Viltu heyra í Guði?  Í pistli vikunnar fjallar Sigríður Halldórsdóttir um að heyra röddu Guðs.

" Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir fylgja mér." (´Jóh.10:27)

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 343
Gestir í gær: 78
Samtals flettingar: 1066722
Samtals gestir: 142520
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 02:16:08

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is