|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Færslur: 2008 Október18.10.2008 15:09Fundur með foreldrum!Á morgun eftir samkomu ætla Ragnar og Hildur að halda fund með öllum foreldrum barna í barnastarfinu. Það er mjög áhugavert fyrir okkur foreldra að fræðast um hvað er verið að kenna í barnakirkjunni og eins hvað þau sjá fyrir sér með veturinn sem framundan er. "Fræð hinn unga um veginn sem hann á að halda og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja" Orðskviðirnir 22:6 Skrifað af Selfossgospel 17.10.2008 08:29Music of My heart - með Nicole C. MullenÞetta lag er frábært til að hlusta á sérstaklega þegar maður þarf að minna sig á að GUÐ er sá sem getur ALLT - eins og ein sagði "Gott að hlusta á þegar maður er í tilfinningalegum rússíbana". En eflaust eru margir á Íslandi einmitt í þannig rússíbana.
Guð blessi þig og leyfðu Guði að vinna í þér á meðan þú hlustar á lagið!
Skrifað af Selfossgospel 15.10.2008 10:22Nýr pistillUndir stikunni "Pistlar" hér á vinstri hönd er komin nýr pistill eftir hana Ragnheiði Blöndal sem ber yfirskriftina "Jesús er SVARIÐ við kreppunni". Í pistlinum er meðal annars minnst á lagið "Jesus is the answer" með Andraé Crouch en það er um að gera að lesa pistilinn og smella síðan á þennan link og hlusta á lagið! Guð blessi þig! Skrifað af Selfossgospel 14.10.2008 12:18Bænastund á morgun kl. 19:00Á morgun miðvikudag byrja bænastundir á nýjan leik. Bænastundirnar verða annan hvern miðvikudag (vikuna á móti heimahópunum) kl. 19-20. Oft hefur verið sagt að bænin sé andardráttur trúarinnar, sem er svo sannarlega rétt. Ef þú hefur eitthvað bænarefni á hjarta þínu, langar að láta biðja fyrir þér eða einhverju öðru þá ertu ávallt velkominn. Guð blessi þig! Skrifað af Selfossgospel 13.10.2008 20:44Mælir með BiblíulestriÍ sjöfréttum í gærkvöldi var viðtal við meðhjálparann í Þorklákskirkju í Þorlákshöfn, en hún mælir með því að fólk lesi Biblíuna á þesum krepputíma. Þú getur horft á fréttina með því smella hér! Skrifað af Selfossgospel 13.10.2008 12:13Samkoman í gærSamkoman í gær var frábær. Aron kom með mjög gott og uppörvandi orð í tengslum við það sem er í gangi í þjóðfélaginu í dag og hvatti okkur til að treysta Guði og taka á móti Guðs friði inn í líf okkar. Skrifað af Selfossgospel 10.10.2008 19:27Nýr PistillUndir "Pistlar" hér á vinstri hönd er hægt að nálgst nýjan Pistil. Pistillinn ber yfirskriftina "Má bjóða þér KreppuKNÚS?" Þú getur nálgast pistilinn með því að smella hér! Skrifað af Selfossgospel 08.10.2008 23:12SunnudagurinnJesúkonur sáu um samkomuna á sunnudag eftir vel heppnaða helgi í Fljótshlíðinni. Samkoman var frábær. Konurnar buðu upp á vitnisburð, leikþátt og predikun sem virkilega töluðu til fólks. Konurnar okkar eru frábærar. Áfram Jesúkonur. Um kvöldið báðu karlarnir í karlastarfinu (Guðsmenn) konunum sem fóru á Jesúkonuhelgina í litla og mjög óvænta veislu í kirkjunni til þess að enda Jesúkonuhelgina. Karlarnir elduðu veislumat, sungu, gáfu rósir og síðan talaðu Hafliði Kristinsson til hópsins. Þetta var frábært kvöld sem seint mun líða úr minni. Skrifað af Selfossgospel 06.10.2008 12:00Að njóta hins Daglega lífs!Á heimasíðu Joyce Meyer er hægt að nálgast tímarit sem er gefið út reglulega sem heitir "Enjoying Everyday Life" eða "Að njóta hins daglega lífs". Skrifað af Gunnu 04.10.2008 09:53Friður á friðlausum tímaÞað umrót sem hefur verið í fjármálaumhverfi Íslands síðustu daga hefur líklega ekki farið framhjá neinu okkar. Fólki er umhugað um sinn hag enda höfum við Íslendingar búið við mikið fjárhagslegt öryggi síðustu ár. Óöryggi er óþægileg tilfinning sem getur verið mjög sligandi. Óöryggi hefur þó þann kost með í för að maður gerir sér betur grein fyrir því hversu vanmáttugur maður er og hversu mikilvægt og gott það er að treysta Guði. Í Galatabréfinu 5. kafla er talað um ávexti andans. Þeir fyrstu þrír í þeirri upptalningu eru kærleiki, gleði og friður. Það að eiga frið Guðs í lífi sínu eru ótrúleg lífsgæði sem erfitt er að útskýra. Í Filipíbréfinu er eftir farandi sagt um frið Guðs: "Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú." Veldu í dag að meðtaka frið Guðs í líf þitt. Guð blessi þig, Aron Skrifað af Aron 03.10.2008 13:26JesúKonu helgiJæja stelpur! Skrifað af Gunnu 02.10.2008 11:26KotmótÁ heimasíðu Fíladelfíu er hægt að nálgast samkomurnar frá Kotmóti 2008. Þú getur nálgast þær með því að smella hér! Skrifað af Gunnu
Eldra efni
Flettingar í dag: 19 Gestir í dag: 13 Flettingar í gær: 343 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 1066722 Samtals gestir: 142520 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 02:16:08 |
Dagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|