02.02.2010 16:32
Á fimmtudaginn kemur sending af hinni vinsælu bók
"Tálbeita Satans" á
Kaffi LÍF.
Fjöldi fólks er fast í fortíðinni og á erfitt með
að fyrirgefa. En skortur á fyrirgefningu skerðir lífsgæði meira en
margt annað. Lausnina er að finna í orðum Jesú. Tálbeita Satans
skilur lesandann eftir með praktíska lausn út úr ógöngunum.
Sjálfsvirðingin eykst, því orð meistarans eru lífbreytandi. Það verður
ljóst að skortur á fyrirgefningu er gryfja sem heldur mönnum föngnum.