06.12.2009 20:53
Í dag er annar sunnudagur í aðventu. Á þessum degi kveikjum við á öðru kertinu í aðventukransinum. Betlehemskertið minnir okkur á þann stað sem Jesús fæddist á. Löngu áður en Jesú fæddist var búið að spá fyrir um það hvar hann myndi fæðast.
"En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael". Míka 5:1