29.11.2009 09:04
Aðventukransarnir eru eitt af augljósustu merkjum þess að aðventan er gengin í garð. Kertið sem kveikt er á í dag er kallað Spádómskertið en það minnir á fyrirheit spámanna Gamla testamentisins, sem höfðu sagt fyrir um komu frelsarans, Immanúel Guð með oss.
Biblíuversið sem mjög gjarnan er lesið þegar kveikt er á Spádómskertinu er tekið úr Spádómsbók Jesaja 7:14 "Fyrir því mun Drottinn gefa yður tákna sjálfur: Sjá, yngismær verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel".
Njóttu dagsins í dag og munu að Guð elskar ÞIG