12.08.2009 12:18
Nú líður senn að hausti og allt fer að taka við sér á ný eftir yndislegt sumar. Heimahópar vakna til lífsins, Alfa námsskeið fer væntanlega af stað nú í haust, Barnastarf, Royal Rangers, Jesúkonur, Guðsmenn o.s.frv. Við erum full tilhlökkunar og erum sannfærð um að spennandi tímar séu framundan. Við hvetjum þig til að vera með í því sem kirkjan er að gera og spyrja Guð hvar þú getur lagt hönd á plóginn.