23.06.2009 02:33
Á þessu ári fór af stað nýtt starf í kirkjunni okkar sem kallast Celebrate Recovery. Þetta er kristilegt 12 spora kerfi sem hefur verið að gera frábæra hluti í lífum margra. Við höfum fengið frábæra hjálp frá vinum okkar í Bandaríkjunum við að koma starfinu á laggirnar. Aron og Gunna og Dagbjört og Þorsteinn eru stödd í USA þessa daganna og heimsóttu kirkjuna sem hefur verið að hjálpa okkur. Meðfylgjandi mynd er frá Celebrate Recovery fundi vikunnar.