|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
26.05.2009 12:16Fótsporin í sandinumMann nokkurn dreymdi draum. Hann dreymdi að hann var á gangi meðfram strönd nokkurri með Jesú. Atburðir úr lífi hans birtustu fyrir hugskotssjónum hans og hann sá lífshlaup sitt sem spor í sandi. Við hlið fótspora hans voru fótspor Jesú sem fylgdi honum hvert fótmál frá því hann bað hann um að koma inn í líf sitt. ![]() Þegar síðasta endurlitið hvarf honum sjónum leit hann yfir fótsporin. Maðurinn tók eftir því að í hvert sinn sem erfiðleikar höfðu orðið á vegi hans voru aðeins ein fótspor í sandinum. Dapur í bragði spyr hann Jesú: "Þú sagðir mér eitt sinn þegar ég ákvað að fylgja þér að þú myndir ganga með mér alla leið. Ég skil ekki hvers vegna þú yfirgafst mig þegar ég þurfti mest á þér að halda." Jesús leiðréttir manninn og svarar: "Barnið mitt, ég elska þig og ég yfirgef þig aldrei. Á tímum erfiðleikanna þar sem þú sérð aðeins ein fótspor, þá bar ég þig í örmum mínum." Jesús var því ekki aðeins með honum alla leið heldur þegar virkilega reyndi á í lífi hans þá tók hann manninn í arma sína og bar hann yfir erfiðleikana. Skrifað af Selfossgospel Eldra efni
Flettingar í dag: 103 Gestir í dag: 52 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 150 Samtals flettingar: 1014848 Samtals gestir: 133639 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 07:36:07 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|