01.04.2009 21:00
Það sem eftir er af þessari viku og alla þá næstu (vikuna fyrir páska)
verður unnið við framkvæmdir í kirkjunni. Mikið stendur til enda er verið
að gjörbreyta neðri hæðinni til þess að setja upp kaffiaðstöðu. Við
þurfum margar fúsar hendur og ólíka hæfileika þessa daga. Ef þú getur
gefið hálfan dag, einn dag eða jafnvel alla vikuna þá er allt vel þegið.
Enginn getur allt, allir geta eitthvað.
Frekari upplýsingar hjá Aroni í síma 694 9498 eða þú getur bara mætt á staðinn.