25.03.2009 09:53
Á sunnudaginn talaði Aron til okkar um það hversu mikilvægt er fyrir okkur sem einstaklinga að tengjast Guði, kirkjunni og öðru fólki. Því við þurfum á Guði að halda og við þurfum á hvort öðru að halda.
Sirrý okkar lofaði Guð með hæfileikum sínum og málaði mynd. Þessi mynd er mjög falleg og táknar ÖRYGGI. Því það er ekki umhvefið sem skiptir máli heldur það að vera ÖRUGGUR í höndum Guðs. Þó svo að allt virðist hættulegt eða erfitt í kringum okkur þá getum við hvílt örugg í faðmi Drottins.

Myndirnar sem Sirrý málar eru allar til styrktar
ABC barnahjálp. Ekki er sett neitt ákveðið verð á myndirnar heldur er fólk hvatt til að bjóða það sem það vill borga fyrir myndirnar. Lágmarksverð er 5.000 krónur.