Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

09.03.2009 09:31

Sunnudagssamkoman í gær!

Í gær var líflegur og skemmtilegur sunnudagaskóli eins og sjá má á myndum í myndaalbúmi.


Klara, Benni og Hjálpfús komu í heimsókn. Klara kom með miklum látum og öskraði oj,oj,oj.... hún hafði nefnilega lent í því að Magga bekkjarsystir hennar hafði fengið blóðnasir í skólanum. Magga hafði beðið Klöru um að hjálpa sér en Klöru fannst betra ef Kolla kennari hjálpaði henni. Benni var nú fljótur að benda henni Klöru á að þetta hefði nú ekki verið fallega gert. Hjálpfús var sammála honum Benna og sagði þeim og krökkunum söguna af Miskunnsama Samverjanum. Klara sá því í lokin að hún hefði gert mistök og verið svolítið fljót á sér en ætlaði að passa sig að vera kærleiksríkari næst. 

                                                Minnisvers vikunnar
                        "Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig".



Á samkomunni fengum við góða gesti en það voru þau Vörður og Ester forstöðuhjón í Fíladelfíu í Reykjavík sem komu til okkar. Þau deildu með okkur frábæru og uppörvandi orði.

Flettingar í dag: 82
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014827
Samtals gestir: 133633
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 06:09:00

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is