Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

23.02.2009 14:07

Sunnudagur

Sunnudagaskólinn í gær var mjög skemmtilegur.

Klara kom öskrandi úr hræðslu í leit að honum Benna vini sínum. Klara hafði heyrt frá vinkonu sinni henni Höllu Hrekkjusvíni að það væru til draugar. Benni var nú fljótur að leiðrétta hana Klöru og sagði henni að það væru ekki til draugar og hún þyrfti  ekkert að óttast.

Benni og Klara 
 
Benni hafði einmitt verið nýkominn frá honum Hjálpfúsi vini sínum en hann gat ekki hitt krakkana í Sunnudagaskólanum í gær af því að hann var lasinn. En Hjálpfús hafið einmitt sagt Benna frá því að við þyrftum aldrei að óttast því að Jesú væri ALLTAF hjá okkur. Klara róaðist við þetta og mundi eftir því sem Hjálpfús hafði kennt henni síðasta sunnudag - en það var einmitt það að Guð gaf okkur Jesú sem gjöf og Jesú er vinur okkar og vill vera alltaf hjá okkur og eiga heima í hjartanu okkar.

Minnisvers vikunnar er: "Sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar"


Á samkomunni voru Berglind og Valdi blessuð frá okkur þar sem þau eru að flytja til Reykjavíkur. Berglind söng lagið "Hallelúja" við undirspil Sigga. Flestir voru vel snortnir við þennan fagra söng en Berglind er mjög hæfileikarík á þessu sviði.

Siggi kom síðan með góða áskorun í predikun sinni. Þar sem hann skoraði á fólk að taka stöðu sína og þjóna Guði í kirkjunni. Sigurður kom einnig með æðislegan vitnisburð inn í predikun Sigga um það hversu mikil blessun er í því að stíga inn í þjónustu. Frábært orð og vitnisburður hjá Siggunum tveim.

                       


Flettingar í dag: 654
Gestir í dag: 102
Flettingar í gær: 365
Gestir í gær: 139
Samtals flettingar: 1015764
Samtals gestir: 133828
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 23:19:53

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is