19.01.2009 09:43
Þessa dagana er Biblíuskólahópur frá Noregi hjá okkur í kirkjunni. Þau þjónuðu til okkar á sunnudaginn, dönsuðu, vitnuðu og predikuðu auk þess að sjá um barnastarfið. Kirkjan var troðfull og áttu þeir sem komu seint á samkomuna erfitt með að fá sæti, svona á þetta að vera:)
Biblíuskólahópurinn verður hjá okkur út þessa viku og verður m.a. að hjálpa til við unglingastarf, að mála í kirkjunni og skipulagningu fyrir "gospel partý" í Tryggvaskála um næstu helgi.
