16.12.2008 12:03

Sænska söngkonan Carola heldur jólatónleika í Fíladelfíu 17. desember nk. kl. 20. Hún kemur fram ásamt sænskum píanóleikara. Carola hefur bæði kraftmikla rödd og gott vald á mjúku, hlýju tónunum sem eiga svo vel við jólalögin. Það verður því bæði hátíðleg og hlýleg jólastemming sem umvefur tónleikagesti. Nánari upplýsingar eru í síma 869 8407. Athugið númeruð sæti. Hægt er að sækja miðana á skrifstofu Fíladelfíu, vinsamlega takið fram ef þið viljið gera það.