09.12.2008 13:01
Nýlega gaf Salt út bókina Dauðinn, sorgin og vonin. Höfundurinn bókarinnar sem er fyrrum ráðherra og prestur, missti son, tengdadóttur og tvö barnabörn í flóðbylgjunni á annan dag jóla árið 2004. Hann lýsir á opinskáan hátt sorginni og baráttunni við sjálfan sig og Guð. Hann gefur einnig lesendum hlutdeild í huggun og von sem boðskapur kristninnar veitir honum og öllum sem hafa misst. Bókin hefur verið prentuð í mörgum upplögum í Danmörku.
