26.11.2008 20:17

Nú stendur undirbúningur fyrir nytjamarkaðinn yfir með fullum krafti. Á fimmtudag, föstudag og laugardag verður unnið að uppsetningu markaðsins í Kjarnanum á Selfossi. Allir sem geta eru hvattir til þess að koma og leggja hönd á plóginn því verkefnin eru mörg. Þeir sem vilja koma og hjálpa til geta hringt í síma 6949498 eða bara hringt á staðinn.
Einnig eru allir hvattir til þess að taka til í geymslunni og gefa hlutina sem hafa setið þar lengi og engin þörf er fyrir lengur. Húsgögn, húsbúnaður, skraut, eldhúsdót föt o.s.frv. Allt kemur til greina. Við getum sótt þá ef þú kemst ekki sjálf(ur) með þá. Þú getur hringt í síma 8936166 og þá sækjum við þá.
Verum öll með í því að taka þátt í þessu spennandi verkefni.