02.11.2008 14:22
Samkoman í dag var virkilega góð. Alfa hópurinn tók lagið og fengum við að heyra vitnsiburð frá Jórunni og Ernu sem eru á Alfa námskeiðinu. Siggi og Berglind gáfu okkur síðan sinn vitnisburð og sögðu frá því hvernig Guð mætti þeim á erfiðum stað í lífi þeirra og kom með nýjan sigur.

Aron talaði síðan til okkar í lokin um mikilvægi þess að leyfa Jesú að komast að í lífi okkar.
Guð blessi þig í dag og gefi þér góðan dag!