19.10.2008 23:16
Að baki er frábær helgi hjá Skjalberum og Útvörðum í Royal Rangers. Árlegt haustmót var haldið í Vestmannaeyjum að þessu sinni. Gist var í Skátastykkinu sem er skáli rétt utan við bæinn. Farið var í sig, klifur, sprang, bátsferð, næturleik o.s.frv. Frábær helgi sem gleymist seint. Helginni lauk síðan með samkomu í Betel þar sem hópurinn söng á samkomunni. Takk eyjamenn fyrir góðar móttökur.