08.10.2008 23:12
Jesúkonur sáu um samkomuna á sunnudag eftir vel heppnaða helgi í Fljótshlíðinni. Samkoman var frábær. Konurnar buðu upp á vitnisburð, leikþátt og predikun sem virkilega töluðu til fólks. Konurnar okkar eru frábærar. Áfram Jesúkonur.
Um kvöldið báðu karlarnir í karlastarfinu (Guðsmenn) konunum sem fóru á Jesúkonuhelgina í litla og mjög óvænta veislu í kirkjunni til þess að enda Jesúkonuhelgina. Karlarnir elduðu veislumat, sungu, gáfu rósir og síðan talaðu Hafliði Kristinsson til hópsins. Þetta var frábært kvöld sem seint mun líða úr minni.