|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
04.10.2008 09:53Friður á friðlausum tímaÞað umrót sem hefur verið í fjármálaumhverfi Íslands síðustu daga hefur líklega ekki farið framhjá neinu okkar. Fólki er umhugað um sinn hag enda höfum við Íslendingar búið við mikið fjárhagslegt öryggi síðustu ár. Óöryggi er óþægileg tilfinning sem getur verið mjög sligandi. Óöryggi hefur þó þann kost með í för að maður gerir sér betur grein fyrir því hversu vanmáttugur maður er og hversu mikilvægt og gott það er að treysta Guði. Í Galatabréfinu 5. kafla er talað um ávexti andans. Þeir fyrstu þrír í þeirri upptalningu eru kærleiki, gleði og friður. Það að eiga frið Guðs í lífi sínu eru ótrúleg lífsgæði sem erfitt er að útskýra. Í Filipíbréfinu er eftir farandi sagt um frið Guðs: "Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú." Veldu í dag að meðtaka frið Guðs í líf þitt. Guð blessi þig, Aron Skrifað af Aron Eldra efni
Flettingar í dag: 595 Gestir í dag: 88 Flettingar í gær: 365 Gestir í gær: 139 Samtals flettingar: 1015705 Samtals gestir: 133814 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:32:30 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|