24.09.2008 23:55

Nú er Royal Rangers skátastarfið komið af stað af fullum krafti eftir gott sumarfrí. Í vetur verða tveir flokkar starfandi á selfossi þ.e. Skjaldberar (11 ára og eldri) og fumherjar (10 ára og yngri). Margt spennandi er framundan í vetur s.s. námskeið, ferðir, leikir, fullt af handverki o.s.frv. Allir krakkar eru velkomnir að slást í hópinn. Fundir eru á miðvikudögum á milli 17:00 og 18:30.
Auglýsing: Skjaldberar auglýsa eftir gömlum tjöldum úr segldúk til þess að nota í handverk í vetur. Tjöldin þurfa ekki að vera nothæf. Ef þið hafið eitthvað slíkt til að gefa í starfið getið þið haft samband í síma 6949498 (Aron)
Takk, takk.