31.08.2008 20:11
Á laugardaginn fór stór hópur af karlmönnum í ferð upp á hálendi þar sem við gistum eina nótt. Þetta var fyrsta ferðin sem karlastarf kirkjunnar fer í og heppnaðist frábærlega. Við byrjuðum á því að fara í 14 km göngu upp á Skjaldbreið. Kvöldið var síðan mjög skemmtilegt og menn kynntust á nýjan hátt. Í ferðinni varð til lag í ferðinni sem hópurinn frumflutti á samkomuni í dag við góðar undartektir.
Hinrik og Gullý töluðu síðan til okkar en þau eru fyrrum forstöðuhjón í Kirkjulækjarkoti en eru núna á leið til starfa fyrir ABC barnahjálp í Burkina Faso. Þau komu með frábært orð til okkar sem verður hægt að hlusta á hér á síðunni, síðar í vikunni.