Guð - gef mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt og visku til að greina þar á milli.
Að lifa einn dag í einu, njóta hvers andartaks fyrir sig,
viðurkenna mótlæti sem friðarveg, með því að taka syndugum heimi eins og hann er, eins og Jesús gerði en ekki eins og ég vil hafa hann og treysta því að þú munir færa allt á réttan veg ef ég gef mig undir vilja þinn svo að ég megi vera hæfilega hamingjusamur í þessu lífi og yfirmáta hamingjusamur með þér þegar að eilífðinni kemur. Amen
Reinhold Niebuhr