Í dag fimmtudag fara nokkur ungmenni úr Royal Rangers starfinu hér á Selfossi og annars staðar af landinu í göngu um hálendi Íslands, nánar tiltekið um Laugavegin þ.e. leiðina á milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Sá hópur sem gengur nú er seinni hópurinn af tveimur sem ætlar að ganga þessa leið. Alls verða um 30 manns í göngunni og þar af 11 frá Selfossi.