Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2010 Júlí

22.07.2010 20:15

Viltu vera með í Royal Rangers?

Royal Rangers Academía



Academia Royal Rangers verður haldin 26 - 29.ágúst 2010


Við trúum að Royal Ranges sé stórt og öflugt verkfæri

frá Drottni til að ná til æsku þessa lands.


Hvað er Academia?

Academían eru þjálfunarbúðir fyrir nýja foringja Royal Rangers. 

Einnig verður útdeilt kennsluefni fyrir næstu önn.

Til að verða foringi í Royal Rangers
Þarf að vera með hreint sakavottorð og samþykktur af sínum forstöðumanni.
Þarf að koma á Academiuna.
Þarf að mæta á foringjamót til að viðhalda starfsleyfi.

(Foringjamótið verður haldið 19-21 nóv. 2010)

 

Skráning er hafin á johannaeldborg@gmail.com
(Síðasti dagur skráningar er 31. júlí)

Ath! Skráningargjaldið er 5000 krónur óendurkræft

Vinsamlegast greiðið inná kt 530804-2080 banki 0182-26-405
og sendið kvittun með skráningunni


Jósúa.24.15
En líki yður ekki að þjóna Drottni, kjósið þá í dag, hverjum þér viljið þjóna, hvort heldur guðum þeim, er feður yðar þjónuðu, þeir er bjuggu fyrir handan Fljótið, eða guðum Amoríta, hverra land þér nú byggið. En ég og mínir ættmenn munum þjóna Drottni.

 Landsnefnd Royal Rangers á Íslandi.


Nánari upplýsingar um starfið er að finna á www.rrr.is

Nánari upplýsingar um Mótið er að finna á www.gospel.is

20.07.2010 11:14

Kotmót 2010 í Stykkishólmi

Óskað er eftir sjálfboðaliðum sem geta komið og hjálpað til við uppsetningu fyrir  Kotmót 2010 í Stykkishólmi. Sjálfboðaliða vantar þriðjudaginn 27. júlí og miðvikudaginn 28. júlí. 

Ef þú getur komið fyrr og hjálpað til þá væri gott ef þú gætir sent póst á netfangið skrifstofa@selfossgospel.is 


Séð yfir Stykkishólm og mótsvæðið


07.07.2010 19:28

Kotmót 2010

Ákveðið hefur verið að Kotmót 2010 verði haldið í Stykkishólmi. Nánari upplýsingar um mótið koma síðar en minnum á að skráning á barnamót er hafin. 

Nánari upplýsingar um barnamótið er hægt að finna hér


02.07.2010 20:23

Kotmót 2010 ekki í Kirkjulækjarkoti

Tekin hefur verið ákvörðun um að Kotmót 2010 verði ekki haldið í Kirkjulækjarkoti vegna mengunar af völdum ösku. 

Verið er að kanna möguleika á öðrum mótsstöðum. Um leið og niðurstaða fæst í það mál verður auglýsing sett hér á heimasíðuna og útvarpsstöðina Lindina.

01.07.2010 12:49

Kaffi Líf

KAFFI LÍF verður opið lengur í sumar.  Alla virka daga er boðið upp á enskan morgunverð, hádegistilboð og kvöldverðartilboð.  Frábært heimahakað bakkelsi og gott kaffi eins og venjulega.

    Flettingar í dag: 68
    Gestir í dag: 39
    Flettingar í gær: 1296
    Gestir í gær: 150
    Samtals flettingar: 1014813
    Samtals gestir: 133626
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:38:41

    Vafraðu um

    Dagskrá vikunnar


    Sunnudagar:
    Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

    Mánudagar:
    Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

    Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



     

    Viltu vera með?

    Gjafir og tíund

    Kt: 591197-2829
    Banki: 152
    Hb: 26
    Reikn: 7800

    Tenglar



    Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is