|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Færslur: 2010 Apríl25.04.2010 18:15PóstlistiÞessa daga erum við í kirkjunni að setja upp póstlista til þess að geta sent út fréttir, kannanir og fleira sem er að gerast í kirkjunni. Skrifað af Selfossgospel 22.04.2010 20:24BænaganganBænagangan 2010 gekk vel og tæplega 20. manns voru mættir. Fyrir utan að biðja fyrirbænum var Selfossi falið að biðja fyrir æskulýðsstarfi á Íslandi. Höldum áfram að biðja fyrir því. Skrifað af Selfossgospel 21.04.2010 09:16BænagangaÁ Selfossi hefst gangan við kirkjuna Austuvegi 40b kl.09 og er áætlað að ganga í klukkustund. Frábær byrjun á sumrinu að biðja saman fyrir landinu okkar. Sjáumst sem flest ! Nánari upplýsingar um bænagönguna má finna hér Skrifað af Selfossgospel 19.04.2010 16:40BænastundirBænastundirnar í þessari viku verða heima hjá Hallgrími á Tryggvagötu 26. Þær byrja kl. 18:00 og eru í um það bil 20-30 mínútur. Skrifað af Selfossgospel 18.04.2010 22:44Bæna- og kyrrðarstundBæna og kyrrðarstund í hádeginu frá kl. 12-13 þessa vikuna í sal Hvítasunnukirkjunnar. Þessi stund er ætluð fólki sem vill taka sér tíma til bæna og njóta kyrrðar. Hægt er að koma og vera allan tímann eða stoppa í stutta stund - ekki er um að ræða skipulagða dagskrá. Allir velkomnir. Skrifað af Selfossgospel 16.04.2010 23:27BiðjumÞað hefur ekki farið framhjá neinum að stór eldgos er hafið í Eyjafjallajökli og hefur það mikil áhrif á stóran hluta Evrópu. Á svæðunum sem liggja næst eldstöðvunum hefur fólk miklar áhyggjur af eigin hag og eigna sinna. Biðjum Guð um að vera með þeim sem eru óttaslegnir og að áhrif þessa náttúruhamfara megi valda sem minnstum skaða bæði hér heima og erlendis. Skrifað af Selfossgospel 12.04.2010 16:11Bænastundir vikunnarBænastundir vikunnar verða alla virka daga kl: 18:00 að Kirkjuvegi 21. Allir velkomnir Skrifað af Selfossgospel 10.04.2010 21:20Á valstikunni hér til hliðar er nú komin valmöguleiki sem heitir "Ég hjálpa til?" þar sem talin eru upp fullt af verkefnum sem þarf að vinna í kirkjunni. Allir sem vilja geta fundið eitthvað við sitt hæfi enda virkar kirkjan bara vel ef allir leggja hönd á plóginn. Skrifað af Selfossgospel 05.04.2010 22:33PáskadagurMikið líf og fjör var í kirkjunni á páskadagsmorgun enda samkoman sérstaklega sniðin að börnunum. Eins og sést á meðfylgjandi mynd þá hjálpuðu brúðurnar Benni og Klara við kennslu dagsins. Skrifað af Selfossgospel 03.04.2010 08:14PáskarUpprisusamkoma kl: 09:00 á Páskadagsmorgun. Barnvæn samkoma og morgunmatur á eftir. (Ath. ekki er samkoma kl: 11:00) Skrifað af Selfossgospel 01.04.2010 00:11Myndir frá karlaferðÍ febrúar fóru nokkrir karlar í Hvítasunnukirkjunni í ógleymanlega ferð austur í Rangárvallasýslu. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá ferðinni.
Skrifað af Selfossgospel Eldra efni
Flettingar í dag: 64 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 150 Samtals flettingar: 1014809 Samtals gestir: 133624 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|