Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2010 Febrúar

26.02.2010 11:05

Burkina Faso 8600 km

Á heimasíðu Þorsteins J. Vilhjálmssonar er verið að frumsýna heimildarmyndina Burkina Faso 8600 km. 

Mjög áhugaverð mynd sem vert er að gefa sér tíma til að horfa á. 

Þú getur nálgast heimasíðu Þorsteins J. með því að smella hér!



23.02.2010 10:09

Bænastundir

Bænastundir þessa vikuna verða heima hjá Sigga og Önnu að Sílatjörn 4. 

Endilega komum saman og biðjum alla virka daga kl. 18:00. 


20.02.2010 11:27

Konuhittingur

Á miðvikudagskvöldið í næstu viku 24. febrúar verður konuhittingur. Við ætlum að hittast heima hjá Siggu á Eyravegi 18 kl. 20:00. 

Þær sem vilja og geta eru hvattar til að koma með eitthvað á kökuborðið. 

Allar konur innilega velkomnar! 

18.02.2010 14:57

Brauðsbrotning

Í kvöld kl. 18:00 verður brauðsbrotning heima hjá Þorsteini og Dagbjörtu (Sunnuveg 14).

"Daglega komu þeir saman með einum huga í helgidóminum, þeir brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans" Postulasagan 2:46


17.02.2010 11:21

LifeChurch TV

Á LifeChurch TV er hægt að hlusta og horfa á margar frábærar ræður. Á forsíðunni er hægt að sjá hver nýjasta ræðan er. Ef þú skráir LifeChurch sem vin hjá þér á facebook geturðu fylgst með umræðum um ræðuna og jafnvel tekið þátt í henni. 

Við hvetjum þig eindregið til að nýta þér þetta frábæra efni og fá góða andlega næringu



Smelltu á myndina hér fyrir ofan til að fara á heimasíðu LifeChurch TV

15.02.2010 08:47

Bænastundir

Bænastundir eru alla virka daga kl. 18:00. Þessa vikuna verða þær heima hjá Þorsteini og Dagbjörtu á Sunnuvegi 14 - neðri hæð. 


Hvetjum þig til að mæta á frábærar bænastundir. 


13.02.2010 15:51

Vitnisburðarsamkoma á sunnudag

Á samkomunni á sunnudaginn (14. febrúar) verður vitnisburðarsamkoma. Þá verður boðið upp á það að þeir sem vilja geti komið með vitnisburð úr sínu lífi. 

Gaman væri að heyra í sem flestum

11.02.2010 11:48

Lifechurch.tv

Hjá lifechurch er hægt að horfa og hlusta  á frábærar predikanir. Í dag langar okkur að mæla með predikunar "seríu" sem kallast margin. Hún fjallar um mikilvægi þess að forgangsraða rétt og hvað það er sem skiptir máli í lífinu. 

Þú getur nálgast heimasíðu lifechurch með því að smella hér




09.02.2010 11:01

Bænastundir

Bænastundirnar í þessri viku verða heima hjá Hallgrími Guðmannssyni (Tryggvagötu 26) kl. 18:00.


02.02.2010 16:32

Tálbeita Satans

Á fimmtudaginn kemur sending af hinni vinsælu bók "Tálbeita Satans" á Kaffi LÍF.




Fjöldi fólks er fast í fortíðinni og á erfitt með að fyrirgefa. En skortur á fyrirgefningu skerðir lífsgæði meira en margt annað. Lausnina er að finna í orðum Jesú. Tálbeita Satans skilur lesandann eftir með praktíska lausn út úr ógöngunum. Sjálfsvirðingin eykst, því orð meistarans eru lífbreytandi. Það verður ljóst að skortur á fyrirgefningu er gryfja sem heldur mönnum föngnum.



01.02.2010 12:34

Bænastundir

Bænastundirnar í þessari viku verða heima hjá Aroni og Gunnu (Kirkjuvegi 21). Bænastundirnar verða frá mánudegi til föstudags kl. 18:00. 

Bænin brýtur múra


    Flettingar í dag: 64
    Gestir í dag: 37
    Flettingar í gær: 1296
    Gestir í gær: 150
    Samtals flettingar: 1014809
    Samtals gestir: 133624
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25

    Vafraðu um

    Dagskrá vikunnar


    Sunnudagar:
    Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

    Mánudagar:
    Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

    Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



     

    Viltu vera með?

    Gjafir og tíund

    Kt: 591197-2829
    Banki: 152
    Hb: 26
    Reikn: 7800

    Tenglar



    Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is