Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2009 Desember

30.12.2009 15:35

Vitnisburðarsamkoma

Samkoma á Gamlársdag verður klukkan 17:00. Þetta er árleg vitnisburðarsamkoma þar sem þeir sem vilja fá tækifæri til að segja vitnisburð frá árinu sem er að líða. 




26.12.2009 23:03

Samkoman sunnudaginn 27. des fellur niður.  

Næsta samkoma er vitnisburðastunda á gamlársdag kl. 17:00

Við minnum síðan á nýjan sunnudags samkomutíma á nýju ári þ.e. kl:11:00

20.12.2009 10:50

Fjórði sunnudagur í aðventu

Í dag er fjórði sunnudagur í aðventu. Í dag kveikjum við á fjórða kertinu í aðventukransinum en það heitir Englakertið. Englakertið vísar til englana sem birtust á jólanótt og sögðu frá því að Jesús væri fæddur. 




"En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir en engillinn sagði við þá: "Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu." Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum." Lúkas 2:8-14




18.12.2009 13:38

Lifejournal

Við mælum með heimasíðunni LifeJournal. Þar er hægt að læra að skrifa Dagbók út frá því sem þú lest í Biblíunni ásamt því að sjá daglega ákveðna kafla sem mælt er með að lesa í Biblíunni. 












17.12.2009 08:15

Dave Ramsey

Á heimasíðu Lindarinnar er hægt að sjá frábær kennslumyndbönd. Myndböndin sem okkur langar að mæla með í dag, eru með manni sem heitir Dave Ramsey. Hann hefur verið þekktur fyrir bókina "Total money makeover" sem hann skrifaði og fyrirlestra sem hann hefur haldið sem tengjast fjármálum. 


Fyrirlestrarnir sem eru þrír bera heitið "Life. Money. Hope" 

Dave Ramsey


14.12.2009 11:50

JesúKonu "hittingur"

Fimmtudagskvöldið 17. desember verður JesúKonu "hittingur". Í þetta skiptið ætlum við að hittast heima hjá Sædísi (Túngötu 3, Eyrabakka). Hvetjum allar konur til að mæta og eiga skemmtilegt samfélag saman. 




Þetta kvöld langar okkur að biðja þig að koma með köku og einn lítin pakka.

Endilega mætum sem flestar því það er svo gaman að vera saman!

13.12.2009 11:23

Súkkulaðidagur

Í dag sunnudaginn 13. desember kl 17:00 verður súkkulaðidagur heima hjá Guðjóni og Sirrý í Grímsnesinu. 



Við hvetjum alla til að mæta og eiga skemmtilegt jólastund saman. 

12.12.2009 14:25

Sunnudagaskólinn fellur niður á morgun sunnudag

Sunnudagaskólinn sem átti að vera á morgun 13. desember kl. 12:45 fellur óvænt niður.

Í barnapössuninni á meðan á predikun stendur fá börnin jólaföndur sem tengist seinustu tveimur kertunum á aðventukransinum.

Sunnudagaskólinn er því formlega komin í jólafrí þar sem stundin á morgun átti að vera sú seinasta fyrir jól. Sunnudagaskólinn hefst að nýju eftir áramót.

Gleðileg jól!

11.12.2009 08:24

Orð til þín í dag


"Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá" Sálmur 37:5




  • 1
Flettingar í dag: 64
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014809
Samtals gestir: 133624
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is