Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2009 Nóvember

30.11.2009 10:31

Jólagjafir

Á Kaffi LÍF er hægt að fá skemmtilegar og uppbyggjandi jólagjafir á góðu verði. 

Bækur fyrir börn, unglinga og fullorðna. Einnig er gott úrval af geisladiskum og DVD. 


Gefðu uppbyggjandi gjafir í jólagjöf!




29.11.2009 09:04

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Aðventukransarnir eru eitt af augljósustu merkjum þess að aðventan er gengin í garð. Kertið sem kveikt er á í dag er kallað Spádómskertið en það minnir á fyrirheit spámanna Gamla testamentisins, sem höfðu sagt fyrir um komu frelsarans, Immanúel Guð með oss.

Biblíuversið sem mjög gjarnan er lesið þegar kveikt er á Spádómskertinu er tekið úr Spádómsbók Jesaja 7:14 "Fyrir því mun Drottinn gefa yður tákna sjálfur: Sjá, yngismær verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel". 




Njóttu dagsins í dag og munu að Guð elskar ÞIG

26.11.2009 10:17

The Shack

Nú eru nokkur eintök af bókinni "The Shack" að koma í sölu á Kaffi Líf. 

Þeir sem hafa lesið þessa bók mæla eindregið með henni - frábær hugmynd að góðri jólagjöf. 

The Shack

21.11.2009 20:52

16.11.2009 20:08

Predikanir á síðunni


Á síðunni okkar er fullt af predikunum frá
kirkjunni sem þú getur hlustað á.

Endilega njóttu þess að í gegnum vikuna
að hlusta á uppbyggjandi orð.

Smelltu hér til að fara inn á upptökusíðuna.

09.11.2009 15:11

Aðstoðarforstöðumaður

Tekin hefur verið upp staða aðstoðarforstöðumanns við Hvítasunnukirkjuna á Selfossi.
Sigurður Ágústsson gegnir þeirri stöðu frá og með sunnudeginum 08.Nóvember, en hann var formlega blessaður í stöðuna með því að allur söfnuðurinn bað fyrir honum og fjölskyldu hans. 

Hlutverk aðstoðarforstöðumanns er að starfa að með forstöðumanni að ýmsum verkefnum sem tengjast kirkjunni en þau hafa aukist talsvert undanfarin ár. 

Við biðjum Sigurði blessunar í nýju starfi og hvetjum allan söfnuðinn til að muna eftir því að
biðja fyrir honum og fjölskyldu hans.

03.11.2009 22:20

Heimsókn á Höfn

Síðasliðna helgi fóru forstöðuhjónin, Aron og Gunna í heimsókn til Hvítasunnukirkjunar á Höfn í Hornafirði.  Á laugardaginn voru þau með námskeið fyrir verðandi heimahópaleiðtoga á Höfn. Gunna talaði síðan á samkomu á laugardagskvöldinu og Aron á sunnudaginn. Frábær heimsókn og við biðjum vinum okkar á Höfn Guðs blessunar. 

Aron að kenna
    Flettingar í dag: 64
    Gestir í dag: 37
    Flettingar í gær: 1296
    Gestir í gær: 150
    Samtals flettingar: 1014809
    Samtals gestir: 133624
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25

    Vafraðu um

    Dagskrá vikunnar


    Sunnudagar:
    Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

    Mánudagar:
    Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

    Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



     

    Viltu vera með?

    Gjafir og tíund

    Kt: 591197-2829
    Banki: 152
    Hb: 26
    Reikn: 7800

    Tenglar



    Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is