|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Færslur: 2009 Ágúst31.08.2009 14:01Alfa námskeiðNú styttist í að Alfa námskeiðið hefjist aftur í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi. Skráning er hafin á netfanginu skrifstofa@selfossgospel.is og í síma 8996568 eða 8621868
Skrifað af Selfossgospel 28.08.2009 10:39JesúKonu helgiHelgina 5-6 september verður JesúKonu helgi. Gist verður í Húsinu í Fljótshlíð í eina nótt. Helgin kostar 3.500 kr.
Skrifað af Selfossgospel 27.08.2009 16:08Opnunartími Kaffi LífKaffi Líf er opið til klukkan 22:00 á fimmtudögum og föstudögum. Endilega lítið við. Nánar um opnunartíma Kaffi Líf hér.
Skrifað af Selfossgospel 24.08.2009 16:50Samkoman 23.ágúst 09Nú er vetrarstarfið að komast í gang hjá okkur og allt að gerast eins og einhver sagði. Samkoman á sunnudag var góð og góðir hlutir að gerast á meðal okkar. Paulo frá Brasilíu talaði til okkar uppörvandi orð sem þú getur hlustað á með því að smella hér. Herbert Guðmunds söng fyrir okkur og vitnaði og síðan frumfluttu Ragnheiður og Tómas Ibsen fyrir okkur nýja þýðingu eftir Ragnheiði á Hillsongs lagi sem heitir á ensku "With all I am" en við höfum kosið að kalla það "í hendur þér." Skrifað af Selfossgospel 21.08.2009 08:51Mót framundanÁ heimasíðu Eldsins - www.eldurinn.is er hægt að finna upplýsingar um mót sem verður í lok Ágúst. Endilega kíkið á það.... Skrifað af Selfossgospel 20.08.2009 22:45Nýr opnunartímiÁ næstunni verður Kaffi LÍF opið til 22:00 á fimmtudags og föstudagskvöldum til reynslu. Sjáumst á Kaffi LÍF... Skrifað af Selfossgospel 14.08.2009 13:03Nýjustu þættir The 700 ClubÁ heimasíðu CBN er hægt að nálgast nýjustu þættina af The 700 Club. Skrifað af Selfossgospel 12.08.2009 12:18FramundanNú líður senn að hausti og allt fer að taka við sér á ný eftir yndislegt sumar. Heimahópar vakna til lífsins, Alfa námsskeið fer væntanlega af stað nú í haust, Barnastarf, Royal Rangers, Jesúkonur, Guðsmenn o.s.frv. Við erum full tilhlökkunar og erum sannfærð um að spennandi tímar séu framundan. Við hvetjum þig til að vera með í því sem kirkjan er að gera og spyrja Guð hvar þú getur lagt hönd á plóginn. Skrifað af Selfossgospel 03.08.2009 23:16Kotmót 2009Þá er kotmóti 2009 lokið. Mótið var það 60. í röðinni og það stærsta hingað til. Andi Guðs var að störfum og margir voru mjög snertir af Honum. Veðrið lék við mótsgesti og tónleikarnir með André Crouch voru stórkostlegir. Skrifað af Selfossgospel Eldra efni
Flettingar í dag: 64 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 150 Samtals flettingar: 1014809 Samtals gestir: 133624 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|