Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2009 Maí

29.05.2009 12:45

The 700 Club

Á heimasíðu CBN er hægt að nálgast The 700 Club sem eru frábærir þættir. Þessir þættir eru sýndir reglulega á Omega en hægt er að nálgast nýjustu þættina á heimasíðunni.

Þú getur horft á The 700 Club með því að smella hér!

27.05.2009 22:40

Aðalfundur

Fimmtudaginn 28. Maí verður árlegur aðalfundur 
Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi.

Við byrjum klukkan 18:00 með súpu og brauði.

Allir eru hvattir til þess að mæta - mætum á réttum tíma:)


27.05.2009 14:38

Azusa street

Á heimasíðunni It´s supernatural er hægt að sjá myndband um upphaf vakningarinnar í Azusa street í Los Angeles en það er einmitt þaðan sem Hvítasunnukirkjan á rætur sínar að rekja.

Endilega horfðu á þetta myndband með því að smella hér!

26.05.2009 12:16

Fótsporin í sandinum

Mann nokkurn dreymdi draum. Hann dreymdi að hann var á gangi meðfram strönd nokkurri með Jesú. Atburðir úr lífi hans birtustu fyrir hugskotssjónum hans og hann sá lífshlaup sitt sem spor í sandi. Við hlið fótspora hans voru fótspor Jesú sem fylgdi honum hvert fótmál frá því hann bað hann um að koma inn í líf sitt. 


Þegar síðasta endurlitið hvarf honum sjónum leit hann yfir fótsporin. Maðurinn tók eftir því að í hvert sinn sem erfiðleikar höfðu orðið á vegi hans voru aðeins ein fótspor í sandinum. Dapur í bragði spyr hann Jesú: "Þú sagðir mér eitt sinn þegar ég ákvað að fylgja þér að þú myndir ganga með mér alla leið. Ég skil ekki hvers vegna þú yfirgafst mig þegar ég þurfti mest á þér að halda." 


Jesús leiðréttir manninn og svarar: "Barnið mitt, ég elska þig og ég yfirgef þig aldrei. Á tímum erfiðleikanna þar sem þú sérð aðeins ein fótspor, þá bar ég þig í örmum mínum." Jesús var því ekki aðeins með honum alla leið heldur þegar virkilega reyndi á í lífi hans þá tók hann manninn í arma sína og bar hann yfir erfiðleikana.

20.05.2009 12:09

Aðalfundur

Árlegur Aðalfundur Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi verður fimmtudagskvöldið 28. maí kl. 18:00. Boðið verður upp á létta máltíð kl. 18:00. Eftir máltíðina taka við venjuleg Aðalfundarstörf. 

Allir safnaðarmeðlimir eru hvattir til að mæta og taka þátt í Aðalfundi. 

18.05.2009 09:22

Viðtal við Patriciu King

Á heimasíðu CBN er núna hægt að nálgast viðtal við Patriciu King. Patricia King hefur mikla spádómsgjöf frá Guði. Mjög skemmtilegt að heyra í henni.

Hægt er að hlusta á viðtalið með því að smella á myndina hér fyrir neðan!

15.05.2009 08:52

Fjársjóðsleit í pistli vikunnar

Í pistli vikunnar hvetur Ann- Helen okkur til að fara í frjársjóðsleit til að finna þær gersemar sem Guð hefur lagt í líf okkar. Frábær lesning emoticon

14.05.2009 21:26

Kaffihús - vinna

Áfram er unnið að framkvæmdum vegna kaffihússins - allar hendur eru vel þegnar.

Unnið er á föstudag og laugardag.
Uppl. í síma 6949498

14.05.2009 11:10

Viðtal við Lauru Woodley

Á heimasíðu CBN er hægt að sjá sjónvarpsviðtal við Lauru Woodley og eiginmann hennar. Margir íslendingar ættu að þekkja diskana hennar Lauru "Home" og "In Love".

Endilega horfið á viðtalið með því að smella hér!

        

13.05.2009 11:15

Fréttir!

Á heimasíðu Christan Today er hægt að nálgast fréttir úr hinum kristna heimi.

Hægt er að nálgast síðuna með því að smella hér!

11.05.2009 09:56

Bænahúsið IHop

Á heimasíðu IHop sem er bænahús í Kansas borg í Bandaríkjunum er hægt að sjá inn í Bænaherbergið í beinni útsendingu allan sólarhringinn. Ef þú ýtir á myndina hér fyrir neðan geturðu fengið að sjá 10 mínútna sýnishorn en síðan er hægt að skrá sig þannig að þú getir verið með allan sólarhringinn.


07.05.2009 08:41

Vinnudagar

Vinnudagar verða í kirkjunni fimmtudag, föstudag og laugardag.

Byrjað verður að vinna um kl. 8:30. En það væri frábært að sjá ÞIG á vinnudegi í kirkjunni þegar þú átt lausan tíma.

Mikið verk er enn fyrir höndum til að hægt verði að opna Kaffi LÍF í byrjun júní.



Allar hendur er mjög vel þegnar!

Matur og kaffi í boði fyrir vinnandi fólk.









06.05.2009 14:07

CBN

Á heimasíðu CBN er hægt að nálgast mikið af áhugaverðu kristilegu efni. CBN er kristileg sjónvarpsstöð sem er meðal annars með þáttinn "The 700 Club" sem er sýndur á Omega.

Endilega kíkið á síðuna með því að smella á myndina hér fyrir neðan!

  • 1
Flettingar í dag: 64
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014809
Samtals gestir: 133624
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is