Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2009 Mars

31.03.2009 21:43

JesúKonu Kvöld

JesúKonur á Selfossi ætla að hittast föstudagskvöldið 3. apríl kl. 19:30  heima hjá Ann-Helen á Laugarvatni. 



Hvetjum ykkur allar til að mæta. Endilega látið vita á netfangið skrifstofa@selfossgospel.is hvort þið komist. 


31.03.2009 11:20

Pistill vikunnar





Í pistli vikunnar veltir Ragnheiður fyrir sér tilgangi Guðs með líf okkar. Frábær lesning og þörf áminning.

,,Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki óhamingju, að veita yður vonaríka framtíð." Jer. 29:11

30.03.2009 12:07

Sunnudagur

Sunnudagaskólinn

Hjálpfús sagði krökkunum frá Pálmasunnudegi og af hverju pálmasunnudagur er kallaður þessu nafni. Benni hélt að hann héti Pálmasunnudagur í höfuðið á Pálma frænda sínum en það var víst ekki svo. Á Pálmasunnudag kom Jesús á asna inn í Jerúsalem. Fólkið var svo ánægt að sjá hann að það hrópaði "Hósanna, blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins". Í ánægju sinni lagði fólk pálmagreinar á götuna og gladdist yfir komu Jesú. Benni var ánægður að vita af hverju Pálmasunnudagur hét þessu skemmtilega nafni og ákvað því að drífa sig til hans Pálma frænda síns og segja honum frá þessari frábæru sögu, Klara var svo spennt að hún dreif sig með honum líka.

Minnisvers vikunnar er: "Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins".



Samkoma

Í gær voru þrír einstaklingar skírðir á samkomunni, en einnig var unglingablessun, þar sem beðið var fyrir honu Steinari.   Sævar talaði síðan til okkar um mikilvægi þess að hafa Jesú í lífi sínu.

27.03.2009 16:15

Guðsmenn hittast!

Á morgun laugardag ætla Guðsmenn að hittast og fá sér morgunmat saman. Hittingurinn verður kl. 9:00  heima hjá Kristjáni að Löngumýri 54. Kostnaður er kr. 500 á mann. 


 
Allir karlmenn velkomnir!

27.03.2009 09:16

Vormót



Til að fá nánari upplýsingar um mótið er hægt að smella á myndina hér fyrir ofan!

26.03.2009 11:53

Pistill vikunnar



Trú er yfirskrif pistils vikunnar að þessu sinni. Góð og hvetjandi lesning frá Gunnu um mikilvægi þess að TRÚA.

25.03.2009 09:53

Síðastliðinn sunnudagur!

Á sunnudaginn talaði Aron til okkar um það hversu mikilvægt er fyrir okkur sem einstaklinga að tengjast Guði, kirkjunni og öðru fólki. Því við þurfum á Guði að halda og við þurfum á hvort öðru að halda.

Sirrý okkar lofaði Guð með hæfileikum sínum og málaði mynd. Þessi mynd er mjög falleg og táknar ÖRYGGI. Því það er ekki umhvefið sem skiptir máli heldur það að vera ÖRUGGUR í höndum Guðs. Þó svo að allt virðist hættulegt eða erfitt í kringum okkur þá getum við hvílt örugg í faðmi Drottins.



Myndirnar sem Sirrý málar eru allar til styrktar ABC barnahjálp. Ekki er sett neitt ákveðið verð á myndirnar heldur er fólk hvatt til að bjóða það sem það vill borga fyrir myndirnar. Lágmarksverð er 5.000 krónur.



21.03.2009 09:00

Aðalfundir Hvítasunnukirkjunnar

Nú um helgina fara fram árlegir aðalfundir Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi.  Þetta eru góðir fundir þar sem farið er yfir það sem við erum að gera, málin rædd og síðan hugað að framtíðinni. 

Aðalfundir 09

19.03.2009 16:09

Pistill vikunnar

Pistill vikunnar ber yfirskriftina "Trúin er brú", en hann er eftir Sveinbjörn Oddson. Frábær pistill sem vert er að lesa.


18.03.2009 09:26

Bænastund

Bænstund í kvöld (miðvikudag) kl. 19:00 í kirkjunni. Endilega komum saman og biðjum og lofum Guð. 


17.03.2009 11:02

Kvennamót !

  

17.03.2009 10:14

Sunnudagssamkoman

Á sunnudaginn fengum við heimsókn frá Biblíuskólanum MCI. Við fengum nokkra vitnisburði og tvær predikanir og söng. Frábær leið fyrir þetta unga fólk að fá tækifæri til að þjóna Guði á þennan hátt. Heimasíða Biblíuskólans er www.mci.is.



Það var líf og fjör í Sunnudagaskólanum. Klara hafði lent í einhverju ósætti við vinkonu sína hana Lillu og vildi ekki leika við hana. Benni var að reyna að hjálpa Klöru að muna eftir því að vera góð við alla, líka þá sem eru ekki alltaf góðir við mann sjálfan. Klara grét þessi ósköp þannig að Benni og krakkarnir í Sunnudagaskólanum þurftu að kalla á hann Hjálpfús. Hjálpfús kom og minnti þau á minnisvers síðustu viku um að við ættum að elska náunga okkar eins og sjálfa okkur. Síðan sagði hann þeim söguna um hann Sakkeus. Klara jafnaði sig fljótt og gerði sér grein fyrir því að hún þurfti að reyna að vera góð við hana Lillu og sýna henni kærleika.

Krakkarnir lærðu í sunnudagaskólanum söguna um hann Sakkeus en einnig það að Jesús vill vera vinur allra. Minnisvers vikunnar er "Því Mannssonurinn er kominn leita hinu týnda og frelsa þ." Lúkas 19:10.

Allir krakkar eru alltaf velkomnin í Sunnudagaskólann!

Sunnudaginn 29. mars verður skírnarsamkoma. Þeir sem hafa áhuga á að taka skírn er bent á að hafa samband við Aron í síma 694-9498.

  • 1
Flettingar í dag: 64
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014809
Samtals gestir: 133624
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is