|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Færslur: 2009 Febrúar27.02.2009 16:44Hvetjum alla foreldra að koma með börnin sín í Sunnudagaskólann.Skrifað af Selfossgospel 27.02.2009 11:12Creation Festival 09Þann 24. - 27. júní næstkomandi verður stór kristileg tónlistarhátíð í Bandaríkjunum sem kölluð er Creation Festival. Á þessari hátíð koma margir þekktir tónlistarmenn fram. Á þessari hátíð er dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Skrifað af Selfossgospel 26.02.2009 12:24Michael W. SmithÁ heimasíðu Michael W. Smith er hægt að sjá að hann er á miklu tónleikaferðalagi með Steven Curtis Chapman. Nýlega gaf Michael út geisladisk sem ber heitið "A New Hallelujah".
Skrifað af Selfossgospel 25.02.2009 12:27Pistill vikunnar
Skrifað af Selfossgospel 24.02.2009 12:28Saddleback kirkjan!Á heimasíðu Saddleback kirkjunnar í Kaliforníu er hægt að horfa á samkomur, bæði beina útsendingu og eins samkomur sem hafa verið teknar upp. Hægt er að nálgast síðuna með því að smella hér! Skrifað af Selfossgospel 23.02.2009 14:07SunnudagurSunnudagaskólinn í gær var mjög skemmtilegur. Klara kom öskrandi úr hræðslu í leit að honum Benna vini sínum. Klara hafði heyrt frá vinkonu sinni henni Höllu Hrekkjusvíni að það væru til draugar. Benni var nú fljótur að leiðrétta hana Klöru og sagði henni að það væru ekki til draugar og hún þyrfti ekkert að óttast. ![]() Benni hafði einmitt verið nýkominn frá honum Hjálpfúsi vini sínum en hann gat ekki hitt krakkana í Sunnudagaskólanum í gær af því að hann var lasinn. En Hjálpfús hafið einmitt sagt Benna frá því að við þyrftum aldrei að óttast því að Jesú væri ALLTAF hjá okkur. Klara róaðist við þetta og mundi eftir því sem Hjálpfús hafði kennt henni síðasta sunnudag - en það var einmitt það að Guð gaf okkur Jesú sem gjöf og Jesú er vinur okkar og vill vera alltaf hjá okkur og eiga heima í hjartanu okkar. Minnisvers vikunnar er: "Sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar" Á samkomunni voru Berglind og Valdi blessuð frá okkur þar sem þau eru að flytja til Reykjavíkur. Berglind söng lagið "Hallelúja" við undirspil Sigga. Flestir voru vel snortnir við þennan fagra söng en Berglind er mjög hæfileikarík á þessu sviði.
Siggi kom síðan með góða áskorun í predikun sinni. Þar sem hann skoraði á fólk að taka stöðu sína og þjóna Guði í kirkjunni. Sigurður kom einnig með æðislegan vitnisburð inn í predikun Sigga um það hversu mikil blessun er í því að stíga inn í þjónustu. Frábært orð og vitnisburður hjá Siggunum tveim. Skrifað af Selfossgospel 22.02.2009 10:41SunnudagaskóliFrábær sunnudagaskóli í dag, sunnudag kl: 12:45 í Hvítasunnukirkjunni Mjög skemmtilegt... Síðan er barnapössun á meðan samkomunni kl:14 stendur. Skrifað af Selfossgospel 18.02.2009 12:25Pistill vikunnarHvaða ávextir eru í þínu lífi ? Í pistli vikunnar veltir Gunna fyrir sér ávöxtum í lífum okkar. Góð áskorun að skoða lífið sitt, sjá hvaða áxexti þar er að finna ! Skrifað af Selfossgospel 17.02.2009 08:38SunnudagurÁ sunnudaginn var yndisleg samkoma. Þorsteinn Jóhannesson predikaði frábæra predikun um mikilvægi þessa að leyfa Guði að komast að og leiða okkur áfram.
Skrifað af Selfossgospel 16.02.2009 09:23Hillsongs kvennamótDagana 30. apríl til 1. maí næstkomandi verður Hillsongs kvennamót Í London. Hægt er að nálgast upplýsingar um mótið með því smella hér! Skrifað af Selfossgospel 13.02.2009 10:19Sunnudagaskólinn byrjar!Sunnudaginn 15. febrúar byrjar sunnudagaskóli í kirkjunni. Sunnudagaskólinn verður ALLA sunnudaga kl. 12:45 - 13:45. Skrifað af Selfossgospel 12.02.2009 11:15UnglingasamkomaÍ kvöld kl. 20:00 verður unglingasamkoma - jibbíííí Skrifað af Selfossgospel 11.02.2009 10:07Hugleiðing vikunnar
Skrifað af Selfossgospel
Eldra efni
Flettingar í dag: 64 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 150 Samtals flettingar: 1014809 Samtals gestir: 133624 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|