|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Færslur: 2008 Desember30.12.2008 19:17Samkoma á gamlárskvöldÁ gamlárskvöld kl:17:00 verður árleg vitnisburðastund í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi. Þetta er skemmtileg stund þar sem þeir sem vilja geta tjáð sig og sagt frá því góða sem Guð hefur gert í lífi viðkomandi á árinu eða liðnum árum. Allir velkomnir. Skrifað af Selfossgospel 30.12.2008 19:07Áramótafjör unga fólksinsEftirfarandi auglýsing er vegna áramótafjörs sem verður í húsnæði Hvítasunnukirkjunnar Mósaík nú á gamlárskvöld. Einnig verður fjör alla nóttina í húsnæði Kærleikans í Faxafeni. Þannig að þið sem viljið vaka inn í nýja árið hafið nóg að gera. Skrifað af Selfossgospel 29.12.2008 18:50Nytjamarkaðurinn áframNytjamarkaðurinn er opin nú milli jóla og nýárs og verður að öllum líkindum opin einnig í Janúar til að byrja með. Nytjamarkaðurinn hefur gengið afar vel hingað til og talsvert mikið af fjármunum safnast fyrir þá sem minna mega sín. Margar fúsar hendur hafa komið að markaðnum er það mikið fagnaðarefni. Til þess að markaðurinn geti gengið áfram þurfum við sjálfboðaliða áfram og nýjar vörur. Þeir sem vilja hjálpa geta hringt í síma 8237923 (Svandís) og þeir sem eru með vörur sem þarf að sækja geta haft samband í síma 8936166 (Ragnheiður) Skrifað af Selfossgospel 27.12.2008 11:14Samkomur framundanSunnudaginn 28. desember fellur samkoma niður. Næsta samkoma er á gamlárskvöld kl: 17:00 þar sem við lítum til baka yfir árið og öllum sem vilja er gefin kostur á því að koma með vitnisburð frá árinu sem er að líða. Næsta sunnudagssamkoma verður síðan sunnudaginn 4. janúar en sú samkoma markar upphafið á nýrri tímasetningu þ.e. eftirleiðis verða samkomur hjá okkur klukkan 14:00. Hittumst hress í Drottni. Skrifað af Selfossgospel 23.12.2008 11:19AðfangadagurHátíðarsamkoma í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi kl: 17:00 á aðfangadag. Göngum saman inn í hátíðirnar. Guð blessi þig. Skrifað af Selfossgospel 23.12.2008 00:28JólapistillSmelltu hér til að lesa pistilinn Skrifað af Selfossgospel 18.12.2008 10:10Bókabúðin LÍFBókabúðin LÍF er opin á sunnudaginn eftir samkomu og eftir samkomulagi. Skrifað af Selfossgospel 16.12.2008 12:03Tónleikar með Carolu
Skrifað af Selfossgospel 15.12.2008 23:04SúkkulaðidagurEftir góða samkomu á sunnudaginn buðu Guðjón og Sirrý öllum samkomugestum (og öðrum sem koma vildu) í súkkulaði á heimili þeirra í Grímsnesinu. Þetta var afar skemmtilegt síðdegi og gott að koma á heimili þeirra hjóna í sveitinni. Guð blessi ykkur og ykkar hús. Skrifað af Selfossgospel 15.12.2008 09:51Bókabúðin LÍF kynnir BorðbænatengingHeimilislífið er dýrmæt gjöf og hægt er að gera margt skemmtilegt og spennandi saman sem fjölskyldan. Borðbænateningurinn er sniðugur til að hafa við eldhúsborðið og leyfa t.d börnunum að kasta tenging og síðan er sú bæn sem kemur upp á teninginn beðin. Borðbænin verður því skemmtileg og spennandi.
Skrifað af Selfossgospel 12.12.2008 23:33Vel heppnað kaffihúsakvöldKaffihúsakvöldið nú á föstudagskvöld heppnaðist frábærlega. Andrúmsloftið var ljúft og margir komust í Jólaskap. Seldar voru kökur og kaffi til styrktar ABC og safnaðist dágóð upphæð. Tónlistarfólkið okkar tekur stöðugum framförum og skilaði okkur frábærum tónlistaratriðum - haldið þessu áfram gott fólk. Skrifað af Selfossgospel 12.12.2008 08:46Kaffhúsakvöld í kvöldÍ kvöld verður stórskemmtilegt kaffihúsakvöld í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi. Ókeypis aðgangur er á kvöldið en seldar verða kökur og heitir drykkir til styrktar ABC Barnahjálp. Allir velkomnir og takið vini ykkar með. Skrifað af Selfossgospel 11.12.2008 11:11SúkkulaðidagurÞann 14. desember kl. 15:00 verður Súkkulaðidagur á Herragarðinum hjá Sirrý og Guðjóni. Í boði verður heitt súkkulaði með rjóma og eitthvað gott að narta í ásamt frábæru samfélagi. Ekið er upp Biskupstungnabraut, framhjá Þrastalundi, beygt inná Þingvallaveg og ekið framhjá Álftavatni. Gatan okkar heitir Ásborgir og húsið er nr.34 Skrifað af Selfossgospel
Eldra efni
Flettingar í dag: 61 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 150 Samtals flettingar: 1014806 Samtals gestir: 133622 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 03:55:44 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|