|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Færslur: 2008 Október31.10.2008 12:50Nýr pistill
Skrifað af Selfossgospel 31.10.2008 10:21Jesúkonustund 1.nóvember
Skrifað af Selfossgospel 28.10.2008 21:06I wish we´d all been ready með DC talkÞetta lag er gamalt og gott. Það minnir okkur ávallt á mikilvægi þess að vera tilbúin þegar Jesús kemur aftur.
Skrifað af Selfossgospel 26.10.2008 19:33Alfa helginÍ dag lauk frábæri Alfa helgi sem að þessu var haldin í Vatnaskógi. Guð var að vinna frábært verk í lífum margra á þessari helgi. Næstkomandi sunnudag verður Alfa samkoma hjá okkur í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi en á henni fáum við m.a. að heyra vitnisburði frá helginni. Ekki missa af þeirri samkomu. ![]() Skrifað af Selfossgospel 26.10.2008 18:07ABC- Burkina FasoSamkoman í dag var frábært. Hinrik og Gullý sem starfa fyrir ABC í Burkina Faso kynntu starfsemina. Gullý sýndi myndir frá ferð sem þau fóru í september síðastliðinn og Hinrik predikaði Guðs orð, þar sem hann hvatti okkur öll til að taka stöðu okkar í Guðs ríki og beina sjónum okkar að Guði og framfylgja því sem hann leggur á hjarta okkar. Einungis kostar 100 krónur á dag (3.000 kr. á mánuði) að styrkja barn í Burkina Faso til að komast í skóla, fá heitar máltíðir og skólabúning. Við hvetjum þig eindregið til þess að taka að þér barn í Burkina Faso með því að smella á ABC merkið hér fyrir neðan. Þú getur skoðað myndir frá stofnun ABC skólans í Burkina Faso með því að smella hér! Skrifað af Selfossgospel 24.10.2008 09:09Alfa helgiAlfa helgi Ef þú ert á leiðinni á Alfa helgi og þér vantar einhverjar upplýsingar, hringdu þá í s: 6949498. Skrifað af Selfossgospel 22.10.2008 14:35Afríku samkoma í FíladelfíuAuglýsing frá Fíladelfíu N.k. sunnudag, 26. október heldur Alþjóðakirkja Fíladelfíu "Afríska samkomu." Afrísk lofgjörð, dans, vitnisburðir og margt fleira skemmtilegt :) Samkoman hefst kl. 13:00 og verður haldin í aðalsal Fíladelfíu, Hátúni 2. Okkur langar mikið til að fylla salinn þannig að við hvetjum þig til að mæta! Ræðumaður er Kolbeinn Sigurðsson, sem hefur starfað sem trúboði í Austur-Afríku. Boðið verður upp á kaffi og afrískt meðlæti eftir samkomuna! Fyrir hönd Alþjóðahópsins, Kristín Jóna Kristjónsdóttir og Helgi Guðnason PS frekari upplýsingar inn á www.filadelfia.is Skrifað af Selfossgospel 22.10.2008 14:31Heimahópar í kvöldí kvöld verða heimahóparnir frábæru. Skrifað af Selfossgospel 22.10.2008 12:17Nýr pistillPistill vikunnar að þessu sinni er eftir hana Dagbjörtu Eiríksdóttur. En pistillinn ber yfirskriftina "Líf þitt hefur tilgang!" Í pistlinum ert þú hvattur/hvött til að skoða tilgangs lífs þíns. Íslendingar hafa fengið að upplifa að heimur veraldlegra gæða er fallvaltur. Tilgangur þessa lífs er svo miklu meiri en okkar litla persónulega veröld. ,, Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki óhamingju, að veita yður vonaríka framtíð." Jer. 29:11 Guð blessi þig ! Skrifað af Selfossgospel 20.10.2008 20:05Predikun sunnudagsinsPredikun síðasta sunnudags, þar sem Jóhannes Hinriksson talaði, er komin inn á netið. Smelltu hér til að fara á upptökusíðuna. Skrifað af Selfossgospel 19.10.2008 23:16RR í VestamannaeyjumAð baki er frábær helgi hjá Skjalberum og Útvörðum í Royal Rangers. Árlegt haustmót var haldið í Vestmannaeyjum að þessu sinni. Gist var í Skátastykkinu sem er skáli rétt utan við bæinn. Farið var í sig, klifur, sprang, bátsferð, næturleik o.s.frv. Frábær helgi sem gleymist seint. Helginni lauk síðan með samkomu í Betel þar sem hópurinn söng á samkomunni. Takk eyjamenn fyrir góðar móttökur. ![]() Skrifað af Selfossgospel 19.10.2008 15:21Samkoman í dagSamkoman í dag var frábær. Yndisleg lofgjörð og frábær predikun hjá Jóhannesi sem talaði til okkar. Jóhannes talaði um lykla Davíðs. Ræðan kemur vonandi inn á netið núna eftir helgi! Guð blessi þig í dag og gefi þér frábær viku. Skrifað af Selfossgospel
Eldra efni
Flettingar í dag: 64 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 150 Samtals flettingar: 1014809 Samtals gestir: 133624 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|