|
Hvítasunnukirkjan á Selfossi - Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is |
|
Færslur: 2008 September30.09.2008 14:55Á mótorhjólum um USAKristilegi mótorhjólaklúbburinn Trúboðarnir eru á ferðalagi um "road 66" í Ameríku. Með því að smella hér er hægt að lesa ferðasöguna og skoða myndir frá ferðinni. Skrifað af Aron 28.09.2008 20:22Samkoma dagsinsog Elsie Tait komu og kynntu starf "Emmanuel Press" sem starfar einkum í Afríku. Þau störfuðu í Afríku í 12 ár en auk þess voru þau forstöðuhjón í Skotlandi í 20 ár. Mjög athyglisvert starf sem vert er að gefa gaum.
Skrifað af Aron 26.09.2008 18:02Bæklingur kirkjunnarÍ vor var útbúin bæklingur um kirkjuna sem prentaður var í 3000 eintökum og dreift víða. Nú er hægt að skoða bæklinginn hér á síðunni því að smella á myndina hér að neðan. Athugið að það getur tekið smá tíma að hlaða honum niður. Bæklingurinn verður síðan áfram á síðunni og hann má Skrifað af Aron 25.09.2008 15:45Ekki sleppa því að horfa á þetta myndbandHér að neðan getur þú horft á tónlistarmyndband með Kirk Franklin þar sem hann fjallar á hreinskilin hátt um persónulega hluti í sínu eigin lífi. Skrifað af Aron 24.09.2008 23:55RR skátarNú er Royal Rangers skátastarfið komið af stað af fullum krafti eftir gott sumarfrí. Í vetur verða tveir flokkar starfandi á selfossi þ.e. Skjaldberar (11 ára og eldri) og fumherjar (10 ára og yngri). Margt spennandi er framundan í vetur s.s. námskeið, ferðir, leikir, fullt af handverki o.s.frv. Allir krakkar eru velkomnir að slást í hópinn. Fundir eru á miðvikudögum á milli 17:00 og 18:30. Auglýsing: Skjaldberar auglýsa eftir gömlum tjöldum úr segldúk til þess að nota í handverk í vetur. Tjöldin þurfa ekki að vera nothæf. Ef þið hafið eitthvað slíkt til að gefa í starfið getið þið haft samband í síma 6949498 (Aron) Takk, takk. Skrifað af Aron 23.09.2008 10:11Ofsóknir á IndlandiFjölmiðlar á Íslandi hafi ekki veitt þessu mikla athygli en hægt er að lesa um málið t.d. á eftirfarandi vefsíðum: http://www.persecution.in/ http://www.digitaljournal.com/blog/1097 http://www.christianpersecution.info/ Skrifað af Aron 21.09.2008 16:23Samkoma dagsinsSamkoman í dag var frábær. Gunna talaði til okkar einlægt orð þar sem hún um leið kynnti starf sem farið verður af stað með eftir áramót. Það starf höfum við valið að kalla LÍF (lifðu í frelsi) og byggist á starfi sem kallast Celebrate Recovery. Meira um það hér síðar. Skrifað af Aron 15.09.2008 09:36ALFA hefst í kvöld!
Skrifað af Gunna 14.09.2008 21:58Sunnudags samkomanFullt var út úr dyrum á frábæri samkomu í dag. Við fengum merkilega heimsókn í dag en það var John Arnott ásamt nokkrum samstarfsmönnum. Við fengum að heyra magnaðan vitnisburð og síðan talaði John til okkar. Guð er góður. Skrifað af Aron
Eldra efni
Flettingar í dag: 64 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 150 Samtals flettingar: 1014809 Samtals gestir: 133624 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25 |
Vafraðu umDagskrá vikunnar Sunnudagar: Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur. Mánudagar: Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér! Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00. Viltu vera með? Gjafir og tíund Kt: 591197-2829 Banki: 152 Hb: 26 Reikn: 7800 Tenglar
Eldra efni
|