Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2008 Ágúst

31.08.2008 20:11

Helgin

Á laugardaginn fór stór hópur af karlmönnum í ferð upp á hálendi þar sem við gistum eina nótt.  Þetta var fyrsta ferðin sem karlastarf kirkjunnar fer í og heppnaðist frábærlega.  Við byrjuðum á því að fara í 14 km göngu upp á Skjaldbreið.  Kvöldið var síðan mjög skemmtilegt og menn kynntust á nýjan hátt.  Í ferðinni varð til lag í ferðinni sem hópurinn frumflutti á samkomuni í dag við góðar undartektir.


Frumflutningur á lagi












Hinrik og Gullý töluðu síðan til okkar en þau eru fyrrum forstöðuhjón í Kirkjulækjarkoti en eru núna á leið til starfa fyrir ABC barnahjálp í Burkina Faso.  Þau komu með frábært orð til okkar sem verður hægt að hlusta á hér á síðunni, síðar í vikunni.

Gullýhinrik













29.08.2008 11:20

Helgin

Reykjavík

Joshua Mills
ásamt konu sinni Janet Angelu og verða þau í Kærleikanum, Faxafeni 8 .2 hæð 29. - 31. ágúst.

Garðabær

 "SYNIR OG DÆTUR KONUNGSINS" í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ  28.- 30. ágúst þar mun PETER JACKSON frá TORONTO kenna um FÖÐURHJARTA GUÐS.


28.08.2008 11:58

Sigurbjörn biskup farin heim til Drottins

Hinn mikli guðsmaður Sigurbjörn Einarsson biskup er látinn, 97 ára að aldri.

Við kveðjum með virðingu mann sem varði ævinni í að starfa fyrir Guð.  

Blessuð sé minning hans.

27.08.2008 09:33

Æðruleysisbænin - upphaflega útgáfa

Guð - gef mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt og visku til að greina þar á milli.

Að lifa einn dag í einu, njóta hvers andartaks fyrir sig,
viðurkenna mótlæti sem friðarveg, með því að taka syndugum heimi eins og hann er, eins og Jesús gerði en ekki eins og ég vil hafa hann og treysta því að þú munir færa allt á réttan veg ef ég gef mig undir vilja þinn svo að ég megi vera hæfilega hamingjusamur í þessu lífi og yfirmáta hamingjusamur með þér þegar að eilífðinni kemur. Amen

Reinhold Niebuhr

24.08.2008 16:01

Samkoman í dag

Nú er haustið senn að nálgast og vetrarstarfið fer að byrja.  Í dag fengum við frábæra gesti en það voru hjónin David og Jodi Pierce.  David fer fyrir alþjóðlegum trúboðsstarfi sem heitir Steiger international og er söngvari hljómsveitarinnar No Longer Music.  Sú hljómsveit var á menningarnótt í gær og spilaði á Ingólfstorgi fyrir framan þúsundir manna.

David talaði á samkomunni í dag og kom með frábært orð um það að fara út og ná til fólks. 


David predikarDavid og Jodi













18.08.2008 23:11

Samkoman á sunnudag

Samkoman á sunndag var frábær.  Við fengum að heyra nokkrar sögur af því hvað Guð hefur verið að gera í lífum fólks í kirkjunni.  Guð er svo frábær.  Heilagur andi starfaði síðan á magnaðan hátt og fólk upplifði snertingu Hans í lífi sínu.

- Ekki missa af næstu samkomu.

16.08.2008 23:31

Brúðkaup

Vinir okkar Dagbjört Eiríksdóttir og Þorsteinn Jóhannesdótir giftu sig í dag.  

Til hamingju elsku vinir og Guð blessi allt ykkar líf.

Þorsteinn og Dagbjört

13.08.2008 16:37

IBethel - vitnisburðir

Á heimasíðu IBethel er hægt að nálgast frábæra vitnisburði. Endilega kíktu á síðuna með því að smella hér!

09.08.2008 14:09

Christian World News

CBN heldur úti fréttastofu sem flytur kristnar fréttir - Christian World News. Í gærkvöldi voru fluttar fréttir frá Olympíuleikunum í Kína frá örlítið annarri hlið en í hinum venjulegu fréttum. 

Þú getur nálgst kristnar fréttir með því að smella hér.





07.08.2008 11:12

Bjarmi

Á heimasíðunni Bjarmi.is er hægt að gerast áskrifandi af tímaritinu Bjarma. 

Bjarmi er tímarit sem fjallar um Kristna trú og kemur út fjórum sinnum á ári. Í blaðinu birtast margvíslegar greinar um kristna trú. Þetta er skemmtilegt blað og alltaf gaman að fá Bjarma inn um póstlúguna. 

Ef þú ert ekki áskrifandi þá endilega láttu verða af því! 

Þú getur séð hvernig þú getur gerst áskrifandi með því að smella hér! 


05.08.2008 17:02

Myndir frá Kotmóti

Búið er að setja talsvert af myndum frá Kotmóti inn á síðuna.

Smelltu hér til að skoða myndir.

05.08.2008 14:33

The Freshwind Band

Í júlí var haldið mót á vegum Eldsins. Á þetta mót koma lofgjörðarband frá TACF í Toronto. Þetta band heitir The Freshwind Band og halda þau úti heimasíðu á MySpace.

Þú getur nálgast síðuna með því að smella hér!

The Freshwind Band

04.08.2008 22:11

Kotmóti lokið

Góðu kotmóti er lokið og flestir komnir heim.  Aldrei hafa verið fleiri á kotmóti en allt gekk þó afar vel eins og venjulega og margir upplifðu snertingu frá Drottni.


kotmót
  • 1
Flettingar í dag: 64
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014809
Samtals gestir: 133624
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is