Hvítasunnukirkjan á Selfossi

- Lifandi kirkja fyrir allan aldur - www.selfossgospel.is

Færslur: 2008 Júlí

29.07.2008 22:40

Tjöldum saman


Gaman að vera saman 

Líkt og í fyrra ætlar kirkjan á Selfossi, vinir og vandamenn að tjalda saman á Kotmóti. Á morgun miðvikudaginn 29.ágúst hittast þeir sem vilja tjalda saman við kirkjuna kl. 17:00. Farið verður í samfloti og fundinn góður staður fyrir okkur í Kotinu. Allir sem vilja vera með eru hjartanlega velkomnir. 
Nánari upplýsingar gefa Siggi 897-9012 og Þorsteinn 847-8905

29.07.2008 21:23

Kotmót framundan

Nú er hið árlega kotmót í Kirkjulækjarkoti framundan.  Mótið byrjar næstkomandi fimmtudagskvöld.  Undanfarna daga hefur verið unnið hörðum höndum að því að koma svæðinu í samt lag til að leyfi fengist til að halda mót, það er nú komið í lag enda hafa margir lagt mikið á sig.

Mætum spennt og eftirvæntingafull á mótið og verum opin fyrir því sem Guð vill vinna í lífum okkar því hann hefur jú bara góða hluti í boði.  Ekki er innheimt aðgöngugjald á mótið þrátt fyrir mikin kostnað við mótshaldið og uppbyggingu svæðisins.  Það er þrá þeirra sem koma að skipulagningu mótsins að allir geti komið á mótið óháð fjárhag enda hafa margir eignast nýtt líf í Kirkjulækjarkoti í gegnum árin.

Það er því óhætt að hvetja þig sem lest þessar línur að gefa rausnarlega til starfsins og vera þannig þátttakandi í þessari ótrúlegu uppbyggingu sem á sér vart hliðstæðu á Íslandi.  

Sjáumst í Kotinu...


 Unnið í örkinni




















28.07.2008 00:04

Ný forstöðuhjón í Vestmannaeyjum

Í dag sunnudag voru sett inn ný forstöðuhjón í Vestmannaeyjum.  Hjónin Guðni Hjálmarsson og Guðbjörg Guðjónsdóttir tóku við starfinu af þeim Steingrími og Þórönnu sem hafa leitt starfið um árabil.  Þetta var afar ánægjuleg stund og við óskum Guðna og Guðbjörgu innilega til hamingju og biðjum þeim Guðs blessunar í þessari nýju ábyrgð sem þau eru sannarlega kölluð til.  

forstöðumannaskipti
 

27.07.2008 23:58

Biblian á netinu


Biblian.is er síða þar sem hægt er að fletta upp í Biblíunni á netinu. Hægt er að leita eftir ákveðnum orðum eða hugtökum og sjá hvar þau koma fyrir í Gamla- og Nýjatestamenntinu. Einnig er þar að finna ýmis áhugaverð kort ofl.  Áhugaverð síða sem getur komið sér vel við að skoða Guðsorð.
Þýðingin sem notuð er á síðunni er 2007 útgáfan. 

25.07.2008 16:56

Lofgjörðar- og bænastund fellur niður í kvöld



Hvetjum sem flesta til að kíkja á samkomu í Fjölbrautarskólanum í Garðarbæ kl. 20:00 í kvöld þar sem 10 manna hópur frá IBethel kirkjunni þjónar. 

Guð blessi þig ríkulega og góða helgi ! 

25.07.2008 11:47

Leikir fyrir krakka

Margir krakkar hafa gaman af því að fara í tölvuleiki. Auðvitað er ekki gott að eyða sumartímanum inni í tölvu en ef einhverjum dettur í hug að fara í tölvuleik í stutta stund þá er um að gera að hafa þá kristilega. 

Á heimasíðu CBN.COM eða Christian Broadcast Network er að finna ýmsa tölvuleiki fyrir káta krakka. 


Þú getur nálgast leikina með því að smella á myndina af honum Nóa hér fyrir neðan! 

22.07.2008 14:12

Mót í Garðabæ

Guðsríkið hér og nú

Fimmtud.24.júlí-laugard.26.júlí

Í Fjölbrautarskólanum í Gardarbæ


10 manna hópur frá IBethel kirkjunni í Kaliforníu og Pastor Fred Wright frá Toronto Airport Christian fellowship.



·      Lærðu  hvernig þú getur fengið lykla til að leysa út Guðsríki hér á jörðu.

·      Upplifðu kraft Guðs að störfum hvar sem er í gegnum þig.

Dagskrá:  

Fimmtud. kl 20

   Föstud. kl 16-18 og kl 20

   Laugard. kl 14-17 og kl 20

 

Skráning: í síma 564 4273 eða á ihansnaerveru@gmail.com

Kostnaður : 3000 kr.

 "Himnaríki er í nánd, læknið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda.Gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té." Matt.10:7-8

 



21.07.2008 13:02

Laugavegsgangan

Royal Rangers hópurinn sem gekk Laugaveginn er komin heim eftir frábæra ferð.  Veðrið lék við okkur og ferðin gekk að mestu mjög vel.  Gengið var í fjóra daga og gist í þrjá nætur á hálendinu.  Fyrstu regndroparnir byrjuðu síðan að falla í þann mund sem við komumst á áfangastað í Þórsmörk.  

Krakkarnir okkar hafi staðið sig frábærlega og við megum vera stollt af þeim.

20.07.2008 22:39

Samkoman í dag

Samkoman í dag var yndisleg og nærvera Guðs mikil

Hallgrímur talaði til okkar um endurkomu Jesú og ættum við öll að hafa eftirvæntingu eftir því í hjörtum okkar.

,,Þá munu menn sjá Mannsoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð." Lúk.21:27

Megi Drottinn blessa þig, Amen!

19.07.2008 20:15

Royal Rangers göngugarparnir væntanlegir

Laugarvegshópurinn er kominn í Emstrur og lætur vel af sér. Þau hafa fengið frábært veður og ferðin verið mjög góð. Hópurinn er væntanlegur á morgun sunnudag kl. 18:00   

18.07.2008 15:49

Bænastund

Bænastundin fellur niður í kvöld kl. 18:30!!!

Megi Drottinn blessa ykkur og gefa ykkur góða helgi kæru vinir

Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið.  Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi." Jóh. 11:25.

17.07.2008 00:17

Laugavegs ganga

Í dag fimmtudag fara nokkur ungmenni úr Royal Rangers starfinu hér á Selfossi og annars staðar af landinu í göngu um hálendi Íslands, nánar tiltekið um Laugavegin þ.e. leiðina á milli Landmannalauga og Þórsmerkur.  Sá hópur sem gengur nú er seinni hópurinn af tveimur sem ætlar að ganga þessa leið.  Alls verða um 30 manns í göngunni og þar af 11 frá Selfossi.

15.07.2008 09:20

Ný heimasíða fyrir kotmót

Komið er ný heimasíða fyrir kotmót. www.123.is/kotmot  þar má finna upplýsingar um dagskrá, barnamót o.s.frv. Nú eru aðeins rúmar tvær vikur í kotmót.

Kotmót 2007

15.07.2008 09:16

Sunnudagurinn

Samkoman á sunnudag var frábær og Andi Guðs að starfa.  Gunnhildur talaði sterkt orð sem hreyfði við mörgum.

Um kvöldið hittust síðan karlarnir, grilluðu og áttu frábært kvöld saman.  Mikil ánægja var með þetta kvöld í karlahópnum.  Lögð voru drög að ferð sem fyrirhugað er að karlarnir fari saman í lok ágúst.

Göngum út í nýja viku í krafti Guðs...    
  • 1
Flettingar í dag: 64
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 1296
Gestir í gær: 150
Samtals flettingar: 1014809
Samtals gestir: 133624
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 04:17:25

Vafraðu um

Dagskrá vikunnar


Sunnudagar:
Samkomur kl. 11:00 - barnastarf á meðan á samkomu stendur.

Mánudagar:
Celebrate Recovery 12. spora fundir kl. 20:00. Opnir fundir fyrir alla - Alltaf. Nánari upplýsingar hér!

Fimmtudagar: Bæna- og lofgjörðastund kl. 20:00.



 

Viltu vera með?

Gjafir og tíund

Kt: 591197-2829
Banki: 152
Hb: 26
Reikn: 7800

Tenglar



Símar: 482-1239 / 694-9498 - Netfang: skrifstofa@selfossgospel.is